Menntamál


Menntamál - 01.02.1972, Page 64

Menntamál - 01.02.1972, Page 64
Þátttakendur í flugmódelnámskeiði haustið 1954. Taiið frá vinstri. Fremsta röð: Kjartan Þorgilsson, Knud Flensted-Jensen, Ingimundur Ólafsson, Svavar Jóhann- esson. Miðröð: Gauti Hannesson, Guðjón Þorgilsson, Axel Jóhannesson, Benedikt Guðjónsson, Bjarni Ólafs- son. Aftasta röð: Þórður Jóhannsson, Jón Jóhannesson, Halldór Guðjónsson, Jón Erlendsson, Halldór Erlendsson. KNUDFLENSTED-JENSEN F. 19. 4. 1914. D. 4. 10. 1971 ÞAKKARORÐ ÚR FJARLÆGÐ Þau sorglegu tíðindi spurðust hingað til lands í fyrri- hluta októbermánaðar, að hinn fjórða þess mánaðar hefði farizt [ umferðarslysi í Herlev í Danmörku Knud Flen- sted-Jensen, yfirkennari. Hann var drengur góður, í þess orðs beztu merkingu. Mikill íslandsvinur. Það mun hafa verið haustið 1954, að hann kom fyrst til íslands. Ástæðan var sú, að hann var ráðinn kennari á kennaranámskeiði í flugmódelsmíði. Flugmálastjóri, Agnar Kofoed Hansen, vildi stuðla að auknum áhuga og þekkingu íslenzkra æskumanna á svifflugi og flug- módelsmíði. Gekkst hann fyrir því ásamt fræðslumála- stjóra, Helga Elíassyni, að stofna til þessa námskeiðs og fá til kennslunnar góðan kennara erlendis frá. Um- sjónarmenn námskeiðsins fyrir þeirra hönd voru Gunnar Sigurðsson, flugvallarstjóri, og Ingimundur Ólafsson, kennari. Val kennara á námskeiðinu tókst framúrskar- andi vel. Knud Flensted-Jensen hafði starfað lengi með áhuga- mönnum að svifflugi og módelsmíðum. Hafði hann unn- ið marga sigra á mótum í þeirri grein og getið sér gott orð fyrir þekkingu og reynslu á þessu sviði. Hann var ungur og áhugasamur, mjög vel greindur og búinn hin- um beztu kostum, er góðan dreng mega prýða. Góð- viljaður, samvizkusamur, nákvæmur og glaðlyndur, svo að honum var eiginlegt að gleðja aðra og bera með sér sólskin, hvar sem hann fór. Auk þessara ágætu kosta, var hann framúrskarandi góður kennari. Hann starfaði við Fredriksbergskóla í Kaupmannahöfn. Kenndi hann þar lengi aðallega smíðar. Átti ég þess síðar kost að heimsækja hann við þau störf. Hafði ég þá góðan samanburð, þvi ég heimsótti kennara í þeirri grein vfðsvegar um öll Norðurlöndin, og þori að fullyrða, að hann hafi verið meðal beztu danskra smfðakennara. Hann vann hug og vináttu okkar allra, er námskeiðið sóttum. Enn gætir áhrifa kennslu hans í skólunum hér, þótt 17 ár séu liðin síðan. Knud Flensted-Jensen var sannur íslandsvinur. Kona hans, Grete, á ættir að rekja til íslenzkra forfeðra, og mun það einnig hafa ýtt undir áhuga hans á íslandi. Móðuramma hennar var prestsdóttir frá Bólstaðarhlíð í Húnavatnssýslu. Umhyggja, vandvirkni og kristilegur mannkærleiki setti mjög svip sinn á heimilislff þeirra hjóna. Þau eignuðust fjögur börn, en urðu fyrir þeirri miklu sorg, að Inger, næstelzta dóttir þeirra, var með ólæknandi hjartamein og dó sem unglingur. Má geta nærri, að vitundin um sjúkdóm hennar og að hún mæ'.ti aðeins lifa fá ár hefur hafa mikil áhrif á foreldra og systkini. Elzta dóttirin, Ellen, lærði læknisfræði og tók hjartasjúkdóma sem sérgrein. Jóhannes, sonur þeirra, er við háskólanám, en hinn yngsti, Knud, er enn f unglingaskóla. Allt eru þetta mannvænleg og elskuleg systkin, sem hafa tekið í arf frá foreldrum sfnum mann- kærleika og heilbrigða, jákvæða lífssýn. Knud Flensted-Jensen var einlæglega trúaður, kristinn MENNTAMÁL 58

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.