Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.07.1969, Qupperneq 12

Æskan - 01.07.1969, Qupperneq 12
mynni St. Lawrence-fljótsins og landfestum varpað I Halifax. Var það mánuði eftir að ferðafólkið lagði af stað frá íslandi. Fyrst var fólkinu skipað upp í innflytjendahúsið og þar var það um nóttina. Næsta morgun lagði það af stað með járnbraut vestur á bóginn. Nú var þotið á ný gegnum skóga, yfir sléttur, akra og engi, fram hjá borgum, þorpum og bændabýlum, alla leið inn í mitt Kanada, til Winnipeg í Manitóba. Þar bjuggu þá og búa enn margir íslendingar. Nokkuð af leiðinni var reyndar farið á skipi, eftir stórvötnum Norður-Amen'ku. Winnipeg er nú fyrir löngu orðin stór og falleg borg, sem hefur hundruð þúsunda ibúa. En þá var hún aðeins smábær, óreglulega byggður, en þó í hröðum vexti, eins og flestar borgir Ameriku á þessum landnámsárum. Nokkrum árum fyrr hafði hinn svonefndi „stóri hópur", sem í voru mörg hundruð íslenzkra vesturfara, farið frá íslandi „vestur um haf“ og setzt að á óbyggðu landi, talsvert fyrir norðan Winni- peg, á suðvesturströnd Winnipegsvatns, beggja megin við fljót það, er rennur þar út í vatnið. Var nýlenda þessi nefnd „Nýja ísland“ og fljótið „íslendingafljót." Landslagi var þannig háttað við Fljótið — eins og það var nefnt í daglegu tali —, að skógivaxnar öldur skiptust á við mýrarsund og flóa. Til þessarar íslenzku nýlendu beindu nú íslenzku landnemarn- ir för sinni. Farið var ýmist á uxavögnum, eins og þar var siður, þar sem járnbrautir voru eigi komnar, eða á skipi eftir Rauðá og Winnipegvatni. Loks komust þau að íslendingafljóti og þar hóf pabbi Lóu smíði bjálkakofa, sem átti að vera heimili þeirra næstu árin, en síðar byggði hann gott íbúðarhús. Hann nam land eftir settum reglum, fór að fella skógartrén, til þess að byggja úr þeim húsið, og þegar því var lokið, fór hann að rífa upp stofnana og ræturnar af trjánum, sem eftir voru niðri í jörðinni, þegar búið var að saga ofan af þeim og fella aðaltréð. Hann brá keðju um trjástubbinn og beitti svo uxum fyrir og reif á þann hátt upp hverja rótina af annarri. Þarna var þá komið rjóð- ur I skóginum, kringum bjálkakofann, og þarna ræktuðu þau hjónin, Sigurður og Þórunn, foreldrar Lóu litlu, garð og tún, garð með kartöflum og alls konar grænmeti og svo tún og akur, sem smá- stækkaði eftir því sem árin liðu og Sigurður gat fellt fleiri tré. Þarna ólust þau svo upp, Lóa litla og systkini hennar, og fóru snemma að hjálpa til í lífsbaráttunni utanhúss og innan, en áttu líka margar glaðar og góðar stundir við leik og starf, þroskuðu sitt íslenzka eðli við erlenda náttúru og kjör og urðu góðar og þrosk- aðar manneskjur, sem ætíð voru sér og landi sínu og þjóðerni til sóma, hvar sem þær komu. Nú ætla ég að segja ykkur, börnin góð, nokkur af ævintýrum þeim, er Lóa litla rataði í, ýmist ein eða I félagi með einhverju af systkinum sínum, sem henni þótti mjög vænt um, enda kom þeim vel saman. Næst: FYRSTU JÓLIN Ný frímcrki. Hátíöarfrímerki Sérstakt hátíðarfrímerki kom út í tilefni þess, að 17. júní s. I. var aldarfjórðungur liðinn frá því island varð lýðveldi. Lýðveldið var stofnað á Þing- völlum 17. júní 1944, fæðingar- degi Jóns Sigurðssonar. Er 17. júní þjóðhátiðardagur íslend- inga. Myndin á frímerkinu er teikn- uð eftir hátíðarmerki því, er gert var 1944 af Stefáni Jónssyni og sýnir islenzka fánann ásamt upprennandi sól, en frímerkið teiknaði Haukur Halldórsson teiknari. Eru frímerkin tvö að verðgildi 25 og 100 kr., marglit og prentuð sólprentunaraðferð hjá Curvoisier s. a. í Sviss. 308

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.