Æskan

Årgang

Æskan - 01.07.1969, Side 34

Æskan - 01.07.1969, Side 34
Tunmid Ef tunglið væri sett niður á jörð- ina, myndi þaö þekja flöt, sem væri 3475 km a3 þvermáli. Uppruni tunglsins er mikið vísinda- legt rannsóknarefni. Ein af mörgum kenningum, sem settar hafa verið fram, er sú, að máninn hafi þeytzt úr jörð- inni og skilið eftir holu í hana, þar sem Kyrrahafið er nú. Önnur kenning er á þá leið, að tunglið hafi verið ejálfstæð- ur hnöttur, sem hafi komið of nærri Tunglið er tæpl. 27daga og 8 stundir að fara kring- um jörðu. Tunglið hefur margan heillað. Elztu sagnir um manninn bera með sér, að tunglið hefur heillað hann. Það hefur átt drjúgan þátt í lífi hans. Á öllum stigum siðmenningar hefur það verið notað til tímatals. Dagatal mánað- arins er miðað við hringferð tunglsins. Gróðursetningartími og vissir helgisiðir hafa verið miðaðir við kvartilaskipti tunglsins. Tunglið, sem er eðlilegur fylgihnöttur og næsti nágranni okkar í geimnum, er nær fjórum sinnum minna en jörðin og er að meðaltali í 382168 km fjar- lægð frá jörðu. Ef íunglið væri sett nið- ur í vesturhluta Bandaríkjanna, næði það frá borginni San Francisco á vest- urströndinni til borgarinnar Cleveland í Ohioríki, en þetta er 3475 km vega- lengd. Uppruni tunglsins er mikið vís- indalegt rannsóknarefni. jörðu og verið ,,gripið“ af aðdráttarafli stærri hnattarins. Við, íbúar jarðarinnar, sjáum aðeins aðra hlið tunglsins. Þetta stafar af því, að á leið sinni kringum jörðinasnýst það einnig um sjálft sig, og vísar ávallt sama hlið þess að jörðu. Tunglið er 27 daga, 7 stundir og 41 mínútu að fara kringum jörðu. Á meðan snýst það að- eins einu sinni í hlutfalli við sólu. Þann- ig jafngildir einn dagur á tunglinu um tveggja vikna tíma hér á jörðu. Tunglið er dimmur hnöttur ogendurkastaraðeins sólarljósinu. Vísindamenn segja, að máninn sé í raun og veru dökkbrúnn á lit, en þar eð horft er á hann gegnum gufuhvolf jarðar virðist hann silfurlit- aður eða rauðgulur. Þegar íunglið sezt eða kemur upp, virðist það rauðara, af þvi gufuhvolf jarðar er þykkara út við sjóndeildarhringinn og útilokar silf- urlituðu yeislana. Okkur virðist tunglið breyta um stærð og lögun á skipulagsbundinn hátt. Þessar breytingar, er okkur virðast eiga sér stað, kallast kvartilaskipti. Fyrsta Tunglið er oft fagurt á að líta. kvartil nýs tungls, sem sést alls ekki, „stækkar" upp f fullt tungl á um það bil tveim vikum. Síðan „smáminnkar“ það niður í hálfmána þriðja kvartilsins, og síðan niður í hið ósýnilega kvartil hins nýja tungls og endurtekur þannig röð- ina. Áhrif tunglsins á höfin mynda tvenn sjávarföll á dag. Aðdráttarafl tunglsins nemur einum sjötta af aðdráttarafli jarðar. Hlutur, sem vegur um þrjú kíló á jörðinni myndi 330

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.