Æskan

Árgangur

Æskan - 01.07.1969, Síða 50

Æskan - 01.07.1969, Síða 50
Svar til ívars: Hugmyndin af kafbátunum er gömul. Leon- ardo da Vinci, sem lézt árið 1510, gerði teikningu af her- skipi, sem gæti kafað, en hélt hugmyndinni leyndri. Kring- um 1800 fór Robert Fulton á fund Napoleons og sýndi hon- um kafbát, sem hann hafði smíðað. Hann var látinn fara i kaf á Signufljóti og sökkva ]>ar gömlu skipi. Napoleon var hrifinn af hugmyndinni fyrst í stað, cn snerist svo hugur og taldi svona sjóhernað svo villimannslegan, að ekki kæmi til mála að beita honum. Þá fór Fulton til Breta en fékk sama svarið, og þá eyðilagði Fulton kafbát sinn. Annar amerískur maður, Da- vid Bushnell, hafði hyggt kaf- l>át 1776, og var lionum ætlaö að eyða enska flotanum, sem ]>á lá úti fyrir höfninni i New Yonk. Stóð til að kafhálurinn færi að skipunum og festi tímasprengjur við ]>au undir yfirborðinu. En þegar til átti að taka reyndust skipin vera með þyltkri koparhúð utan á trébyrðingnum, og á því strandaði. Þýzkur liðsforingi, Wilbelm Bayer, smíðaði kafhát 1850 til að granda danskri flotadeild, sem þá lá í Kielarflóa.En strið- inu Jauk áður en báturinn var fullgerður, og árið eftir sökk hann á 18 mctra dýpi. í borgarastyrjöld Bandaríkj- anna sökkti kafbátur i fyrsta skipti óvinaskipi. Suðurríkin áttu kafbát, sem hét „Hunley", og hann sökkti korvettunni „Housatonic", — en kafbátur- inn i'órst við sömu sprenging- una. Sköminu eftir 1880 smíð- aði Svíinn Nordentoft fjóra kafbáta hvern eftir annan og voru ]>eir sýndir ýmsum her- málafræðingum á Eýrarsundi, en reyndust illa. En írlendingurinn Jolin P. Holland er í rauninni höfund- ur kafbáta nútímans. Hann var skólakennari í Bandarikjunum, en smíðaði kafbáta í tómstund- um sínum. Fyrsti báturinn eft- ir hans fyrirsögn var smíðað- ur árið 1900 og Bandaríkja- stjórn keypti liann. 1 nýtizku kafbát eru 7 millj- ón mismunandi hlutir, og kringum 20 þúsund sérteikn- ingar eru gerðar af ýmsum hlutum hátsins. Nú eru stór- veldin farin að byggja atóm- knúða kafháta, og eitt af mestu afrekum, sem kafbátur liefur unnið, er sigling bandaríska kafbátsins Nautilusar 1300 sjó- mílna leið án ]>ess að koma nokkurn tima upp á yfirborð- ið, eða líu sinnum lengri leið en nokkur kafbátur hafði áð- ur farið í kafi. í þeirri ferð var ganghraði skipsins yfir 16 milur að meðaltali alla leiðina, og alls var kafbáturinn 84 tíma í kafi. Samt setti Nautilus ekki dýptarmet i þessari frægu ferð, það átti ]>ýzkur kafbátur, sem í síðari heimsstyrjöldinni komst niður á 270 metra dýpi. Gjörbylting varð i kafbáta- siglingum eftir að kjarnorltu- kafbátarnir komust í notkun, svo að nú eru ferðir eins og sú, sem Nautilus fór, orðnar daglegt brauð. f heimsstyrjöldinni síðari, á árunum 1939—1945, var kaf- bátafloti Þjóðverja öflugastur í heimi, og kafbátarnir voru í þeirri styrjöld eitt af þeim vopnum stríðsaðila, sem ollu mestu tjóni. í dag stendur yfir kapphlaup stórveldanna, Bandarikjanna og Sovétríkj- anna, um siníði kjarnorkuknú- inna kafbáta. Hér hirtist stutt frásögn, er lýsir, hvernig kafbátar sökkva skipum á hafi úti, og er frá- sögnin tekin úr bók, er Árni Óla gaf út árið 1928, en frá- sögn þeirrar bókar er höfð eftir Julius Sehopka, er var skipverji á þýzkum kafbát í fyrri lieimsstyrjöldinni. „Við lögðum af stað hinn 1. júii 1917 vestur frá Helgo- landi. Úti í sjó var okkur til- kyiint um ]>að, á hvaða svæði við ættum að lierja. Á leiðinni hittum við gríðarstór tundur- dufi, sem voru á reki, og skut- um þau í kaf með rifflum. Þeg- ar við koinum inn á siglinga- bannsvæði, hittum við fyrir sænslia skipið „Stalhelm" og sökktum þvi. Nokkrum dögum seinna réðist á okkur flugvél og 4 loftför og ellu okkur þangað til við fórum i kaf — og þá rigndi yfir okkur sprengjum, en við sluppum lieilir á húfi. Nokkru seinna sáum við skipsreyk skammt frá og sigld- um þangað. Var þarna norska skipið „Flóra“ eitt á ferð og óvopnað. Vissum við ekki fyrst í stað, livaða skip þetta var, og vegna þejrrar reynslu, sem við liöfðum fengið, urðuin við að fara varlega. Komum við nú úr kafi og tókum að skjóta á skipið með fallbyssu á 9000 metra færi. Bráðlega liæfði ein kúlan og fór þá fólkið i hát- ana. Kafbátssljóri gaf ]>á skip- un um það að fara í kaf og sigldum við í eitthvað 600 metra færi við skipið og send- um þvi tundurskeyti. Komum við nú úr kafi og sigldum til bátanna. Við liittum nú skip- stjórann á „Fióru“ og spurðum hann, livernig á ]>ví stæði, að liann liefði hætt sér inn á siglingabannsvæði. Hann kvaðst hafa verið á leið frá íslandi til Bergen. Hefði þá komið að sér enskt beitiskip og skipað sér að lialda rakleitt til Leirvíkur til skoðunar, og varð það nú til þess, að skipið var skotið i kaf. Þegar „Flóra“ sökk, sá ég sjón, er ég gleymi seint. Það voru tveir íslenzkir liestar á sundi þarna úti á liafi. Höfðu þeir verið á þilfari skipsins. Annar þeirra var grár, ljóm- andi fallegur iiestur. Hann strokaði sig frísandi upp úr sjónum og stefndi beint á okk- ur, eins og hann vænti þar lijálpar. Við þorðum ekki að tefja okkur á ]>ví að stytta liestunum aldur, því að ]>að liefði getað orðið okkur stór- liættuíegt. En ég gat ekki var- izt því að hugsa um, live lengi þeir mundu geta lialdið sér á sundi. Ekki svo-lengi að þeir næðu landi. Kraftarnir lilutu smám saman að þverra og sein- ast mundu ]>eir verða að gefast upp — sprungnir á sundinu. Veslings skepnurnar!“ Franskar kartöflur. Svar til Hönnu: Þær cru skrældar liráar og skornar i þunnar sneiðar (má ekki skera í pinna). Þerraðar vel og steiktar i vel heitri feili. Fína, bláleita gufu á að leggja upp úr pottinum, áður en farið er að steikja. Verði kartöflurnar fitugar, er það merki ]>ess að feitin sé eklii nægilega heit. Við steikinguna má nota vír- körfu eða bara gataskeið. Þeg- ar kartöflurnar eru teknar upp má leggja þær á gráan pappír- Fínu salti er stráð á þær. Þeim má lialda heitum í bökunar- ofni, þangað til fara á að mat- ast. Þær má og hita upp á sama liátt. Kafbátur 346

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.