Æskan

Volume

Æskan - 01.07.1969, Page 51

Æskan - 01.07.1969, Page 51
SPURNINGAR OG SVOR Susan Hampshire Svar til Helgu: Sjónvarps- notendur fylgdust í vetur af niiklum áhuga með liinu vin- sœla framhaldsleikriti „Sögu l’orsyte-ætta ri nnar‘‘. Sjón- varpsleikrit hetta er einstakt i sinni röð. Það spannar yfir timabilið frá 1879 og allt fram á árið 1930. Þetta var stærsta verkefni, sem brezka sjónvarp- ið hafði ráðizt í, og kostaði geysimikið fé. Hér á eftir verður sagt frá Susan Hampshire, sem fer með stærsta kvenhlutverkið í leikritinu eftir að líða fer á ])að, hlutverk Fleur. Hin 28 ára gamla Susan Hampshire gat ekki lesið leik- ritið yfir og lært það þannig utanbókar. Hún er orðblind. Þegar henni var hoðið lilut- verk Fleur, sem hún þegar þáði, vissi enginn, að hún var nær ófær um að lesa. Hún fékk hlutverkið iesið inn á seguiband, og á æfingum undr- uðust menn mjög, þegar liún las upphátt úr leikritinu, ým- ist aftast eða fremst í bókinni og í engu samræmi við gang leiksins. Hún hafði þá þegar lært allt blutverkið utan að. En einnig á öðrum sviðum er liún sérstæður persónuleiki. Hún elskar að hneyksla heiminn og gerir það oft. Þeg- ar liún var á táningaaldrinum feröaðist hún til Afriku fyrir sparifé sitt og hóf störf í frumskógarsjúkrabúsi Alberts Schweitzers. Hún var fyrsta þekkta konan í Englandi, sem kom fram i stuttu tízkunni. Á hverju ári er hún á lista yfir bezt klæddu konur Englands. Ef maður skrifar til Susan Hampshire, svarar liún alltaf persónulega, og margir skrif- ast reglulega á við hana. Hún befur unun af sambandi við annað fólk, og sérstaklega á það við um 12 svertingjabörn i Afríku, sem eru nokkurs kon- ar fósturbörn liennar og hún kostar lil náms. Hún er gift franska kvik- myndaleikstjóranum Pierre Granie-Deferre. Er Susan liafði lokið leik sínum í Sögu Forsytanna, lióf hún leik í nýjum sjónvarps- myndaflokki. Er það kvik- mynd, sem gerð er eftir skáld- sögunni Fyrirmyndar eigin- maður eftir Oscar Wilde. Með Susan leika þar margar fræg- ustu stjörnur brezkra kvik- mynda, svo sem Jeremy Brett, Margaret Leighton, Dinali She- ridan, Keith Mitciiell og Zene Dare. MÁRÍA Svar til Tótu: Á siðasta ára- tug liefur grisk-bandariska sópransöngkonan María Callas unnið sér nafn sem ein mesta söngkona, sem nú er uppi. Fá- ur söngkonur eru vinsælli en hún af áheyrendum né hafa eins hátt kaup og hún. Engri söngstjörnu fylgist blaðaheim- urinn jafn vel ineð og einmitt uenni. Og fáar söngkonur eiga jafn marga sigra að baki og hún. María Callas er ólík frcmstu óperusöngkonum nítjándu ald- ar, sem sungu og léku hlutverk Sln af nokkru kæruleysi og iöldu ósvífni, ef lialdið var að Þeim að æfa sig. María lcggur sig þvert á ’uóti í lima við að kynnast vel liverju smáatriði í lilutverkum Mnum og æfir sig því vel und- >r iivert einasta þeirra. Hún er rkki einasta mikill söngvari, úeldur og hinn prýðilegasti CALLAS leikai'i. Samt er söngrödd liennar að undirstöðu til ekki á néinn hátt sérstök. Röddin er mikil en ekki sérlega falleg. Það undraverða við Maríu Callas er, live mikið lienni lief- ur tekizt að gera úr rödd sinni, en það má ]>akka þrautseigju hennar, viljakrafti og góðum sönggáfum og túlkunarliæfi- leikum. Hún befur náð frá- bæru valdi yfir hverju blæ- brigði raddar og svipbrigða, svo að túlkunin sýnist eins áreynslulaus og eðlileg og frekast má vera. Skilningur hennar á tónlist og söng ber vott um mikið innsæi og þroska, og í leik sínum liefur hún náð. mikilli tækni. Skapliiti liennar er mikill og það svo, að oft hefur valdið erfiðleikum á söngferli hennar, og hafa sumir óperusöngvarar, svo scm di Stefano, liarðlega neitað að syngja nieð lienni. Maria Callas. María Anna Soffia Cecilía Kalogra Poulos fæddist 3. des- ember 1923 í New York, og voru foreldrarnir grískir inn- flytjendur, sem komið liöfðu frá Aþenu fjórum mánuðum áður. Barnæska iiennar \'ar ekki sérlega ánægjuleg, og foreldr- ar hennar voru langt frá að vera efnaðir. Maria á bitrar minningar frá þessum árum. Hún segir sjálf svo frá: „Syst- ir mín var grannvaxin, falleg og vinsæi, og mamma dáðist að benni, en ég var ijóti andar- unginn, feitlagin, klunnaleg og vinafá.“ Hún gekk með þykk gler- augu (og gerir það enn, þegar hún kemur ekki fram opin- berlega) og tók rösklega til matar síns. „Ég iiataði skólann," segir liún. „Ég hataði allt og alla. Eg varð feitari og feitari." Átta ára gömul lók liún að sækja kennslu í tónlist og upp- lestri og iiún sigraði i einni eða tveim keppnum i ]>essum greinum. Og hún varð þess vísari, að „þegar ég söng, þótti öllum vænt um mig.“ En söngnám hennar liófst fyrir alvöru eftir að fjölskyld- au fluttist til Aþenu árið 1936 og liún hlaut styrk til náms við ríkissöngskólann. Árið 1942, en þá var hún 19 ára, kom hún fyrst fram opin- berlega í Aþenu. 347

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.