Skírnir - 01.01.1919, Qupperneq 23
16
Yeðurfræðistöð á íslandi.
[Skirnir
í r æ ð i (klimatologi) og v e ð u r f r æ ð i í . þ r e n g r i
rn e r k i n g u . En þessar tvær greinar korna svo mjög
hver við aðra, að eigi verða dregin skýr takmörk milli
þeirra. Má segja að loftslagsfræðin leiti eftir að íinna með
sem mestri nákvæmni meginreglu fyrir veðurfarinu eða
ioftslaginu á sem flestum stöðum á yfirborði jarðarinnar,
með sérstöku tilliti til áhrifa þess og þýðingar fyrir jurta-
gróður og dýralíf hvers staðar. Hún fjallar og um hinar
sveiflubundnu breytingar á frumþáttum veðurfræðinnar,
sem endurtaka sig með jöfnu millibili, en mismunandi
eftir árstíðum og afstöðu á jörðunni. — Verður þetta fund-
ið með því að safna veðurathugunum um lengra skeið og
taka síðan meðaltal af þeim fyrir einstök ár, mánuði, daga
og jafnvel klukkustundir. Það er augljóst, að því lengra
áraskeið, sem athuganirnar ná yfir, því meira verður á
þeim að byggja og meðal-skekkja þeirra minni. Yfirleitt
má segja að loftslagsfræðin sé hinn landafræðilegi
þáttur veðurfræðinnar, sem jafnan miðar við vissan stað,
en er síðan bundin við föst tímatakmörk. T. d. er megin-
veðráttan í Reykjavík hin sama i júlímánuði, hvort sem
er árið 1912 eða 1918. Hinsvegar getur skeð að veðrið
hafi annað árið verið betra en meðallag, en hitt árið
lakara.
Veðurfræðin sjálf er nú á dögum mestmegnis e ð i i s -
fræðileg, og byggir meginreglur sínar á eðlisfræði-
legum grundvelli, en færir sér einnig i nyt athuganaforða
og staðreyndir loftlagsfræðinnar., Höfuðviðfangsefni henn-
ar er að finna orsakir til breytinga þeirra, er jafnan verða
í gufuhvolfinu og rás þá, er þessar breytingar fylgja. Því
sé sú rás föstum lögum háð, hljóta þau einmitt að vera
rétti lykillinn til að leysa höfuðþrautina: að segja fyrir
urn veðrið á ókomnum tíma. Til þess að geta gert nokkru
nánari grein fyrir, hvernig veðurfræðin hagar störfum sin-
um og hvers árangurs má af þeim vænta, verður naumast hjá
því komist að fara fyrst nokkrum orðum um helztu frum-
þætti hennar, hvern út af fyrir sig. Verður þar fljótt yfir