Skírnir - 01.01.1919, Qupperneq 26
Skírnir]
Veðurfræðiatöð á íslandi.
19
Gufuhvolfið, setn lykur um jörðina, htilir með
Loftþyng in. þungR e|g.j alllitlum á yfirborði hennar. Þyngd
loftsins er svo lítil, samanborin við eðlisþyngd fle3tra annara
hluta á jörðinni, að daglega verðum við þess lítt varir —
enda hvilir þungi þess jafnt á öllu. Þrýstingu loftsins á yfir-
borð jarðar má að jafnaði reikna rúm 1000 g á cm2 eða
10000 kg á m2 (flatarmetra). Er það þungi loftsúlu
þeirrar, er hvílir lóðrétt á yfirborðinu og er 1 flatarmetri
að þverskurði. Leiðir þá af sjálfu sér að þunginn hlýtur
að vera mestur við jörð niðri, en minka því hærra sem
dregur upp eftir, Eigi verður með vissu sagt, hve langt
gufuhvolfið nær út frá jörðunni; en óhætt má fuliyrða að
úr því kemur yfir 75 km, sé loftið orðið svo þunt, að
það hafi engan verulegan þunga. Loftþyngdin minkar ná-
lægt því um hclming á hverjum 5000 m upp eftir. í
10000 m hæð verður hún þá að eins fjórði hluti móts
við þyngdina á yfirborði jarðarinnar og í 75 km hæð ekki
meira en V30000 hluti hennar.
Loftvogin er áhald, sem allir þekkja 0g vita að notað
er til að mæla með loftþungann. Hún er fundin af ítölsk-
um manni, Toricelli, árið 1643. Urðu menn þá fyrst var-
ir og tóku að gefa gaum brcytileika loftþyngdarinnar 0g
áhrifa hans á veðráttuna. — Kvikasilfurloftvogin er löng
glerpipa beygð i tvær mislangar álmur. Er sú lengri lok-
uð i endann, en hin styttri opiii og nokkuð víðari efst.
Sé pípan nú fylt með kvikasilfri, þannig að ekkert loft
verði yfir kvikasilfrinu í lengri álmunni, og viti báðar
álmur lóðétt upp, þá bleypur þó eigi alt kvikasilfrið niður
úr lengri álmunni, en staðnæmist svo, að viss hæðarmun-
ur verði á yfirborðsflötunum í opnu og lokuðu pipunni.
Það er þrýsting loftsins á yfirborð kvikasilfursins í opnu
álmunni, sem varnar því útrásar. Því meiri sem sú þrýst-
ing er, því hærra stendur kvikasilfrið í löngu greininni,
loftvogin stígur. Þyngd loftsins eða þrýsting mælist þá
við hæðarmismun kvikasilfursins i álmunum margfaldaðan
með eðlisþyngd þess (13,6). Sé pípan t. d. um 1 cms að
vídd og hæð kvikasilfurssúlunar 76 cm, þá er loftþyngd-