Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1919, Side 54

Skírnir - 01.01.1919, Side 54
Skirnir] Þýðingar. 47 Þó að sjálfmentun okkar sé enn þá í mörgu stórum áfátt, þá eigum við nóga menn, sem geta visað leiðina í rétta átt. Menn, sem hafa leitað sér mentunar af innri þörf og hreinum hvötum, af þrá til þroska og ást á þekk- ingu og skilningi — hafa farið hægt af stað, byrjað seint og vitandi vits, en haldið áfram til elliára, aldrei tekið fram fyrir hendurnar á eðlilegri rás þroskans, sífelt haldið nánu sambandi milli hugsunar og lífs, þeKkingar og verka. Sjálfmentunin stefnir að manngildi, þar sem skólamentun- in vill gera menn að steinum í vegg eða hjólum í vél. V. Þjóðirnar eru eins og hljóðfæri i orkestri heimsmenn- ingarinnar. Þau eru misjöfn að styrkleik og hljómferð, en ekkeit má þegja ef vel á að vera. Samvinna allra þjóða, þar sem hver um sig er nauðsynleg heildinni og um leið öllum hinum, er eini trausti grundvöllurinn, sem í'éttlæti og friður verða bygð á. Við íslendingar getum látið okkur sæma að vera ekki nema veik fiðla á þessu hljómþingi, ef röddin er hrein, þó hún sé veik. En við getum ekki sjálfra okkar vegna verið utan við það, látið okkar hvergi gæta í samhljómnum. Það væri óbætanlegur skaði fyrir sjálfsvirðingu okkar, mundi ósjálfrátt marka bvern einstakling þurfamannsmarkinu, hvað sem þörf heimsins á hjálp okkar liði. Það er mér ljúf tilhugsun, að á íslendinga framtíðar- innar mætti benda sem fyrirmyndarþjóð í jöfnuði mentun- ar og manngildis. Að hjá okkur rey.ndi hver maður sjálf- ur að þroska hæíileika sina, að finna þá braut, sem lion- um er eðlilegust, að vera vakandi og vaxandi fram á elliár. Við erum að færast inn á meiri lýðfrelsisöld og jafnaðar en nokkru sinni fyr, en um leið hlýtur menning alþýðunnar að verða sífelt meira íhugunarefni. Smáþjóð- irnar geta gert tilraunir, sem verða ómetanlegar fyrir hin- ar stærri, og þvi merkilegri, sem þær eiga dýpri rót í eðli þjóðarinnar og staðháttum landsins. Með því að full-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.