Skírnir - 01.01.1919, Side 76
Skirnirl
Island 1918.
C9
29 skip frá Reykjavík til útlanda, en 73 komu. Auk Ameríku-
feröanna, som áður er getiö, var haldiS uppi stöðugum ferðum milli
Reykjavíkur og Kaupmannahafnar meS einu skipi, sem flntti þó
ekki póst, og milli Leith og Reykjav/kur með viSkomustaS f Berg-
en. Flutningsgjöld meS þessum ferðum hafa lækkað allmikið á ár-
inu, einkum vegna þess, að stríðsvátryggingar lækkuðu. Stríðsvá-
^fygging á vörum kostaði fyrri árshelmir.ginn 3 og 5 af lindr. eftir
þv/, hvort flutt var á gufu- eða seglskipum, en 12 eða 15 afhndr.,
ef siglt var um hættusvæSið. En eftir að samið var vopnahló fóll
iðgjaldið svo, að þaS nam aðeins '/g af hndr. fyrir öll skip jafnt. Nokk-
uS svipað fóru flutningsgjöldin að lækka. Fyrri hluta ársins var
flutningsgjald milli Bretlands og Islands 400 kr. á smálest meS
land8sjóðsskipum, en í desember 175 kr. að jafnaðl. En sennilega
hefir flutningsgjaldið ekki allstaðar verið alveg svona hátt, því auk
áætianaskipanna sigldu hingað allmörg leiguskip, aðallega með
kol og salt, og botnvörpungarnir sigldu stöðugt með afla sinn til
Englands.
En botnvörpungarnir, sem veiðar stunduðu nú, voru að eins
sjö, fimm frá Reykjavík og tveir úr Hafnarfirði. Einn var gerður
út frá New Foundlandi. Oftast nær öfluðu þeir í ís og sigldu jafn
óðum með afiann til Englands. Verðið var mjög misjafnt, frá 1200
og upp í 8000 pund fyrir farminn. En auk botnvörpunganna
stunduðu 14 þilskip veiðar á vetrarvertíð, en 7 á vorvertíð, og var
hæstur afii G2 þús. Einm'g var nú aftur farlð að stunda allmikið veið-
ar á opnum bátum, og í Reykjavík voru t. d. á árinu 120 bátar.
Eitt skip var einnig gert út til hákarlaveiða. í ýmsum veiðistöð-
um hamlaði gæftaleysi nokkuð, en yfirieitt var aflinn góður og má
telja að fengist hafi alls um 19 þús. smálestir, miðað við fullverk-
aðan saltfisk. Áftur á móti brást síidaraflinn að ymsu leyti og
öfluðu botnvörpungarnir tiltölulega minna en vélbátarnir, einn t. d.
aðeins 700 tn. Á Siglufirði voru þessar veiðar stundaðar af 60 vól-
bátum og 1 botnvörpung og 8 skipum norskum, og var aflinn sam-
tals um 60 þús. tunnur. Eitthvað svipað var ástandið á ísafirði,
en rættist þó nokkuð úr, er á leiö, bæði þar og í Reykjarfirði.
Mun hafa orðið af þessu halli á útgerðiuni allvíða, enda var flest,
8em til sjávarútvegs þurfti, vandfengið og dýrt. Smálestin af salt-
inu kostaði t. d. 260—270 kr. og steinoiíutunnan 90 kr., en smurn-
ingsol/a 200 kr. Af öðru því, sem sjómenn þurfa, má nefna að
olíuklæSnaður og stígvól kosta nú um 126 kr. og línur 31/, pd. um
95 kr. og fjögra mannafar, sem áður köstaðl 200 kr. meS öilum