Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 3

Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 3
VALU •« & 30. TÖLUBLAÐ — 1972 ÚTGEFANDI: Knattspyrnufólagið VALUR. Félagsheimili, íþróttahús og leikvellir að Hlíðarenda við Laufásveg. RITSTJÓRN: Einar Björnsson Frímann Helgason, Gunnar Vagnsson og Sigurdór Sigurdórsson. Auglýsingaritstjóri: Friðjón Guðbjörnsson. Prentað í Isafoldarprentsmiðju hf. Fram, fram, frækið lið Það er nauðsyn ungurn mönnum, körlum og konum, að þjálfa líkama sinn og herða. Þess vegna eru íþróttir með því bezta, sem ungur maður leggur stund á í tómstundum sínum. Hollar íþróttir bera margfaldan ávöxt í lífinu síðar. Þess vegna er allt það sjálfboðastarf, sem lagt er fram í íþróttafélögunum, ómetanlegt fyrir þjóðfélagið og miðar að því að ala upp hrausta og dugmikla einstaklinga. Þetta hafa framsýnir menn séð á öllum tím- um. Einn þessara manna var stofnandi Vals, sr. Friðrik Friðriksson. Ég hef heyrt sagt frá því, að hann hafi fyrst verið dálítið efins um gildi þess, þegar ungir drengir úr KFUM voru farnir að sparka knetti suður á melum á litl- um malarvelli, sem þeir sjálfir höfðu rutt og hreinsað grjóti. En þegar hann gjörði sér Ijóst, i hverju leikurinn var fólginn og hvert var inni- hald knattspyrnunnar, þá greip þessi leikur hann sterkum tökum og hann fylgdist af áhuga með leikjum „drengjanna sinna“. Og enn í dag eigum við kvæði, sem hann orti um þenn- an leik og sýna, hvert gildi knattspyrnan hafði í augum hans. Hann sá í henni uppeldisgildið, sem fylgir öllum flokkaíþróttum, þar sem loka- sigurinn er alltaf kominn undir samleik og samheldni, en ekki eingpngu undir stjörnu- leik eins eða örfárra einstaklinga. Og í þeirri æfingu og ögun, sem sérhver leikmaður varð að gangast undir, ef hann vildi ná árangri í iþrótt sinni, sá hann ómetanlegt uppeldisgildi fyrir mannlífið allt. En hann gleymdi því aldrei, að knattspyrn- an sjálf eða íþróttirnar í heild eru aldrei loka- takmark i sjálfu sér. Og þessi skilningur hins mikla og framsýna æskulýðsleiðtoga okkar má aldrei gleymast. Hið mikla gildi íþróttanna ligg- ur fyrst og fremst í þeirri þjálfun, sem iðk- Séra Jónas Gíslason. endur þeirra fá og heldur gildi sínu ævina á enda. Það eitt getur aldrei verið lokatakmark nokk- urs manns í íþróttum aðeins að setja mörg mörk eða stökkva fáeinum sentimetrum lengra eða hærra en aðrir. Þetta eru allt mikilsverð atriði og varða miklu, þegar keppt er. En þessi keppni og þátttaka í henni verður að gjöra okk- ur hæfari til þátttöku í hinum mikla leik, sem líf okkar er á þessari jörð. Af tvennu varðar það þó miklu meiru, hver verða lok þess mikla leiks, heldur en eingöngu úrslit einstakra leikja á leikvanginum. Mig langar til þess að nota þetta tækifæri til þess að brýna fyrir þér, Valsmaður góður, að þú átt að nota í lífinu þann lærdóm, sem þú eignast í drengilegri keppni. Ef þú ætlar að ná langt í flokkaíþrótt, verður þú að temja þér að hugsa um heill og velgengni alls flokks- ins og láta vera að reyna að einleika, svo að þú fáir aflað sjálfum þér aðdáunar og frægðar. Þá eiginleika, sem þarna þarf að æfa með sér, átt þú að taka með þér út í lífið. Og mundu, að á hinum mikla leikvelli lífsins, þá er mark- ið hærra og æðra en það eitt, að koma knett- inum í netið. Það var meginhugsjón sr. Friðriks, að leik- ur og keppni innan félagsins væri undirbún- ingur hinnar miklu keppni lífsins. Það er Guð sjálfur, sem sett hefur okkur mönnunum mark sitt að keppa að. Hann hefur gefið son sinn, Jesúm Krist, inn í heim okkar mannanna, til
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.