Valsblaðið - 11.05.1972, Side 6
4
VALSBLAÐIÐ
Veizlustjórinn áhyggjufullur.
mennina til dáða —• tók virkan þátt
í starfsemi félagsins, á meðan hans
naut við, með þeim eldlega áhuga,
sem einkenndi störf hans öll. Það var
ekki nóg, að séra Friðrik hvetti ungu
mennina til dáða, hann brýndi einnig
fyrir þeim skyldurækni við íþrótt
sína, tók fegurðina og leikreglurnar
fram yfir kappið, og að viðurkenna
það sem vel var gert af andstæðingum.
Með þetta veganesti þarf engan að
undra, að takast skyldi að vinna bug
á byrjunarerfiðleikunum og lyfta Val
í þann veglega sess sem félagið skipar
í dag í íþróttalífi höfuðborgarinnar
og reyndar í okkar ágæta föðurlandi.
-----— Allt frá stofnun hefur það
verið ríkjandi stefna í félaginu, að
Valur ætti sína eigin íþróttamiðstöð.
Vellir voru ruddir og teknir í notkun,
en ávallt þurftu Valsmenn að sjá á
Birgir ísl. Gunnarsson, fulltrúi Borgar-
stjórnar Reykjavíkur, flytur ávarp og
þakkir borgarstjórnarinnar til Vals.
bak þessum æfingavöllum, ýmist
vegna skipulags borgarinnar eða
flugvallarframkvæmda. Það var ekki
fyrr en Valur réðist í kaupin á Hlíð-
arendaeigninni árið 1939, að varan-
legt aðsetur skapaðist fyrir starfsemi
félagsins. Var það mest að þakka
framsýni og stórhug Ólafs heitins
Sigurðssonar. Með kaupum á Hlíðar-
enda var lagður grundvöllur að því
stórkostlega fyrirtæki sem Valur er
í dag.
Á undanförnum árum hefur starf-
semi félagsins aukizt svo mikið, að
þau mannvirki, t. d. íþróttahús, knatt-
spyrnu- og handknattleiksvellir og
félagsheimili, sem reist voru með svo
miklum stórhug á árunum 1940 til
1960, eru orðin of lítil. Þess vegna
verður ekki lengur beðið með að hef j-
ast handa um auknar framkvæmdir,
fleiri knattspyrnuvelli, handknatt-
leiks- og körfuknattleiksvelli, stærra
íþróttahús og félagsheimili.
Borgaryfirvcld, sem ávallt hafa
sýnt íþróttamálum borgarinnar mik-
inn skilning og stórhug, eins og verk-
in bera með sér, hafa úthlutað Val
viðbótarsvæði. — Ég vil nota þetta
tækifæri til að koma á framfæri við
borgaryfirvöld þakklæti okkar Vals-
manna, að fyllsta tillit verður tekið
til þarfa Vals, þegar gengið verður
frá skipulagi borgarlandsins í kring-
um Hlíðarenda.
Úlfar Þórðarson fiytur kveðjur
fþróttabandalags Reykjavíkur.
--------Þeir sem í dag koma fram
fyrir félagið á leikvöllum, munu sjá
um, að leikurinn haldi áfram, þannig
mun það ætíð verða, að Valur verð-
ur til á meðan íþróttir eru stundaðar
á íslandi.
Við Valsmenn horfum því léttir
í lund til framtíðarinnar, vitandi það
að Valur á æskuna.
Avörp og gjafir
Margir urðu til þess að ávarpa af-
mælisbarnið við þetta tækifæri og
færa því gjáfir og blóm.
Menntamálaráðherra, Gylfi Þ.
Gíslason, var erlendis þegar afmæl-
ishófið fór fram, en hann sendi kveðju
til veizlunnar, frá sér og konu sinni,
svohljóðandi:
„Á sextíu ára afmæli Knattspyrnu-
félagsins Vals óskum við félaginu
allra heilla og þökkum ágætt starf
þess í sex áratugi.
Guðrún og Gylfi Þ. Gíslason“.
Fulltrúi Reykjavíkurborgar við
þetta tækifæri var Birgir ísl. Gunn-
arsson borgarráðsmaður. Flutti hann
Sveinn Björnsson flytur kveðjur frá
íþróttasambandi íslands.
Val kveðjur og þakklæti borgarinnar
fyrir þátt félagsins í uppeldi æsku
borgarinnar. í ræðu sinni sagði hann
frá því á sérstaklega hugnæman hátt,
þegar sonur hans vildi ganga í Val,
og þurfti til þess crlitla aura. Sjálf-
ur sagðist hann hafa alltaf verið í
Fram, en það var eins og það féllu
aldrei til aurar í þessu skyni.
Þó var eins og auraráðin bötnuðu
heldur, þegar ungi maðurinn sagðist
ætla að ganga í Fram. Birgir sagði
þessa sögu vel og undirstrikaði
skemmtilega þessa sterku taug sem
þarf að vera í sérhverjum góðum
félagsmanni til félags síns, sem þarf
að vera og á að vera sterka aflið í
hverju félagi — í íþróttahreyfing-
unni allri.
Sveinn Björnsson flutti kveðju frá
íþróttasambandi íslands og árnaöi
félaginu heilla, um leið og hann þakk-
aði því starfið á liðnum 60 árum.
Fyrir hönd sérsambandanna ávarp-
aði Albert Guðmundsson Val og Vals-