Valsblaðið - 11.05.1972, Side 7
VALSBLAÐIÐ
5
Albert Guðmundsson form. K. S. 1.
flytur kveðjur sérsambandanna.
menn og flutti þakkir fyrir góð störf
í þágu íþróttanna.
Úlfar Þórðarson, formacur Iþrótta-
bandalags Reykjavíkur, flutti stutt
ávarp. Minntist samstarfsins við Val,
sem verið hefði ein styrkasta stoðin
í samstarfi félaganna í borginni síð-
an ÍBR varð til. Árnaði hann félag-
inu allra heilla í tilefni af þessum
tímamótum.
Að síðustu mælti fulltrúi íþrótta-
félaganna í Reykjavík, Einar Sæ-
mundsson, nokkur árnaðarorð til Vals
og þakkaði fyrir gott samstarf og
minntist dugnaðar félagsins bæði á
sviði íþrótta og hins félagslega starfs.
Var gerður góður rómur að ávörp-
um og kveðjum gesta og fengu þeir
heitt og innilegt lófatak viðstaddra.
Þá kvaddi sér hljóðs Sveinn Zoöga
og færði félaginu að gjöf ValsblaðiÖ
frá upphafi, innbundið í tvö þykk
bind.i, sem segja má að sé saga félags-
ins í þessi 60 ár.
Undir lok veizlunnar kom einn
stofnenda Vals, Helgi Bjarnason, með
eftirfarandi beiðni til veizlustjóra:
Má ég segja átján orð
yfir borðum,
þau munu engan styggja á storð,
en standa í skorðum.
Var þetta að sjálfsögðu veitt, og hafði
hann þetta að segja:
Oft mega Valir veðra sala
vinda kljúfa þvalan straum.
Ungir halir, eggja hjala:
Áfram Valur, gegnum flaum.
Þess má geta, að stofnendur afhentu
félaginu nokkra fjárupphæð til efl-
ingar tilteknum atriðum, eftir nánari
ákvörðun stjórnarinnar.
Þá má geta þess, að hófinu og Val
barst eftirfarandi orðsending:
„Með þakklátum huga óska ég Val
þess, að í félaginu megi alla tíð vera
ríkjandi drengskapur, fegurð, góður
félagsandi og heilbrigður metnaður.
Gamall Valsungi.
Þessu fylgdi peningaupphæð, sem
stjórnin skal ráðstafa til heilla fyrir
félagið.
Þegar hér var komið, kom Ómar
Ragnarsson á vettvang og veitti
veizlugestum mikla og góða skemmt-
un, sem vakti mikinn fögnuð og kát-
ínu.
H eiðursveitingar
Að lokum fóru svo fram heiðurs-
veitingar, bæði frá aðalstjórn og
deildum, og fara nöfn þeirra hér á
eftir.
Gullorðan:
Albert Guðmundsson,
Friðjón Guðbjörnsson,
Einar Björnsson.
Gullmerki:
Ægir Ferdinandsson,
Friðjón Friðjónsson,
Jón Kristjánsson,
Sigurður Marelsson,
Stefán Hallgrímsson,
Elías Hergeirsson.
Silf urorða:
Axel Einarsson, fv. form. H.S.I.
Ásbjörn Sigurjónsson, fv. form.
H.S.Í.
Silfurmerki:
Guðmundur Ásmundsson,
Guðbjörg Árnadóttir,
Jón Bergmann,
Carl Stefánsson,
Björn Halldórsson,
Róbert Jónsson.
Knattspyrnudeild Vals heiðraði á
60 ára afmæli félagsins eftirtalda
menn, sem leikið hafa flesta leiki í
meistaraflokki.
Þórður Þorkelsson, form. Vals, afhendir heiðursmerki Vals á 60 ára afmæli félagsins.
Efsta myndin: Albert Guðmundsson, Friðjón Friðjónsson. — Miðmyndin: Elías Her-
geirsson, Jón Kristjánsson, Friðjón Friðjónsson og Sigurður Marelsson. — Neðsta
myndin: Itóbert Jónsson, Carl Stefánsson, Guðmundur Ásmundsson og Guðbjörg
Árnadóttir.