Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 9
VALSBLAÐIÐ
7
hingað kom 1. júli í sumar og var
hér til 17. júlí:
Reidar Sörensen heiðursgestur,
Kolbjörn Kristiansen aðalfararstj.,
Magne Aas fararstjóri,
Terje Arneberg þjálfari.
Leikmenn:
Björn Olav Kristiansen, Tov Nord-
engen, Peter Kristian Solberg, Knut
Siemsen, Orrvar Dalby, Fred Roar
Hansen, Tor Erik Jonsdal, Björn
Arild Nordengen, Erik Slettehaug,
Knud Skar, Sigurd Brandenger,
Steinar Brandengen, Harald Berg,
Arne Martinsen, Björn Brendlien,
Björn Vidar Jonsdal.
Ííf var í raun <><; vcra
ivvintgrV*, sagði Sararstjér-
inn. Kolbjörn Kristiansen
Ert þú ánægður með „ævintýra-
ferðina" til Islands?
Já, ég er ákafiega ánægður með
þetta ævintýri, sem í bréfum okkar
í milli var haft í gæsalöppum, en
þær þurftu ekki að vera, því að þetta
hefur verið raunverulegt ævintýri
fyrir okkur.
Margir piltanna höfðu t. d. aldrei
komið í flugvél og fengu því tækifæri
til að sjá sitt eigið land úr lofti í
„spillende sol“. Þegar að Islandi kom,
blasti Vatnajökull hvítur og stórbrot-
inn við augum okkar og flugið yfir
land ykkar var hluti af ævintýrinu.
Reidar Sörensen sagði okkur sitthvað
frá íslandi og þar á meðal að mót-
tökur þar væru frábærar, en við höfð-
um ekki verið hér lengi þegar við
urðum þess vísari, að Sörensen hafði
ekki haft nógu sterk orð um það.
Allar móttökur hafa verið frábær-
ar og við höfum hvarvetna mætt ein-
lægri vináttu. Ferðalögin um landið
á staði eins og Akranes, með viðkomu
í Hvalstöðinni og förin til Þingvalla,
þótt veður væri ekki hagstætt þar, og
að sjá Gullfoss, verður okkur lengi
minnisstætt, fossinn var svo dásam-
lega fagur. Viðkoman á hinn sögu-
fræga stað Skálholt, er eitt af mörgu,
sem við geymum í minningunni.
Þá má ekki gleyma flugferðinni til
Vestmannaeyja eða því sem fyrir
augu bar þar. Dvölin í Eyjum var
okkur mikið ævintýri. Fólkið þar sem
annars staðar var vinsamlegt eins
og þar væru bræður og systur. Við
fengum að sjá til hinnar frægu Surts-
eyjar, sem er skemmtilegt náttúru-
fyrirbæri.
Veðurguðirnir sáu fyrir því, að við
urðum að fara með skipi til lands.
Allir erum við ,,landkrabbar“ og kvið-
um því fyrir ferðinni. Sjóveikispillu-
birgðir í lyfjabúðinni þar minnkuðu
mikið þann daginn og komu að góðu
haldi. Allt gekk þetta þó vel, og varð
einn af skemmtilegu þáttunum í æv-
intýrinu.
Þegar komið var að landi, beið okk-
ar stór bifreið, sem flutti okkur til
Reykjavíkur. Sem sagt okkur hefur
liðið vel hér, og tveir piltanna skrif-
uðu nýlega heim og bar saman um
að þeir vildu varla fara heim aftur,
a. m. k. ekki strax. Á þessu má sjá,
að áhrifin af landi og þjóð hafa verið
þægileg og góð fyrir þessa gesti Vals.
Þetta glaðlega par, sem er þó ekki „par“,
handleikur gripi fyrir fjölda leikja. Björg
Guðmundsdóttir fyrir 100 leiki. Bergur
Guðnason fyrir 200 leiki. Til vinstri
er formaður Handknattleiksdeildar Vals,
Guðm. Frímannsson.
Hvað vilt þú segja um knattspyrn-
una í 2. fl. hér?
Það sem fyrst og fremst einkennir
leik þeirra er hraði og sóknarvilji og
að einstaklingarnir eru sterkir og
duglegir.
Ég vil því fullyrða að íslenzk knatt-
spyrna í þessum flokki stendur hátt
miðað við það sem ég þekki til. Hvað
varðar okkur pilta í Brumunddalen,
er það skoðun mín að þeir hafi verið
töluvert sterkari í fyrra, þegar þeir
urðu Noregsmeistarar, en þetta ber
ekki að skoða sem afsökun fyrir
frammistöðu þeirra hér. Þeir hafa
lært mikið á ferðinni, sem ég vona að
þeir færi sér í nyt þegar heim kemur.
Ævintýrið var ævintýri frá byrjun
til enda. Það var ævintýri að sjá land
ykkar, kynnast æskufólki ykkar á
velli sem utan.
Ennfremur að sjá hve þjóðin sækir
fram á öllum sviðum, að því er virðist.
Að lokum vona ég að samstarfið
milli Brumunddalen og Vals, sem
byrjaði 1956 og hófst aftur í ár, haldi
áfram í framtíðinni. Við hlökkum til
að taka á móti öðrum flokki ykkar
næsta ár, þó að ég efist um að við get-
um tekið á móti þeim með slíkum
rausnarskap og þið hafið gert, sagði
þessi geðþekki fararstjóri að lokum.
..Knattspfirnan hér þrosh-
aðri í 2. Hohki cn í NoregV%
sagði igrirliði Btruniund-
ilalen, Fred R. Ransen
I lokahófi, sem haldið var fyrir
gestina frá Brumunddalen, náðum við
tali af fyrirliða liðsins og lögðum fyr-
ir hann nokkrar spurningar varðandi
Islandsförina og dvölina hér og fer
það rabb hér á eftir:
Ert þú ánægður með Islandsferð-
ina?
Ég er mjög ánægður með ferðina
Unglingar á öllum aldri, veifa fagnandi heiðursgjöf, sem þeim var afhent á sextugs-
afmæli Vals, fyrir fjölda leikja í tapi og sigrum, gleði og sorg.
Frá v. Geir Guðmundsson, Frímann Helgason, Björgvin Hermannsson, Ellert Sölva-
son, Þorsteinn Friðþjófsson, Guðbrandur Jakobsson, Halldór Einarsson, Hermann
Gunnarsson, Hermann Hermannsson, Jóhann Eyjólfsson, Magnús Snæbjörnsson, Björn
Júlíusson, Gunnar Gunnarsson, Ormar Skeggjason og Elías Hergeirsson.