Valsblaðið - 11.05.1972, Qupperneq 38

Valsblaðið - 11.05.1972, Qupperneq 38
36 VALSBLAÐIÐ Ég segi það eins og er, að mér datt aldrei í hug að eitthvað kæmi fyrir okkur. Það lagðist strax i mig, að við kæmumst heilu og höldnu heim. Ég hef verið næmur á það í lífinu fram að þessu, að finna á mér hvað verða muni. Einhvern tíma hef ég heyrt það, að þið hafið látið í veðri vaka við Þjóðverjana í Noregi, að þið væruð með hernaðarleyndarmál í fórum ykkar sem yrðu að komast til réttra aðila, og að þeir mættu sízt af öllu trufla það. Var þetta rétt, Úlfar? Ég held nú, satt bezt að segja kannske, að við höfum látið í það skína að við værum ekki með hern- aðarleyndarmál, heldur hitt, að við værum í „sérstökum erindum“, það væri ekki hægt að tala nánar um þetta, en að það væru „sérstök erindi" sem við ættum að reka. Það vildi nú svo til að einn af félögunum um borð, var kunnugur í vissum svæðum Þýzkalands, en ég mjög kunnugur í öðrum, sem voru ólíkleg svæði eins og austursvæðin, þar sem engir út- lendingar voru yfirleitt. Við vorum svo þrælkunnugir þessum stöðum, sem þeir fóru að spyrja um, að það hlaut að slá þá undarlega, hvað þess- ir menn vissu. í þriðja lagi vorum við með „kaptein", sem var með heið- ursmerki frá sjálfum Hindenburg, fyrir að bjarga þýzkri skipshöfn, og hafði skilríki um það um borð. Það var því erfitt fyrir Þjóðverjana að vera ónotalegir við þennan mann, sem stjórnaði fleytunni, mann sem hafði bjargað þýzkum sjómönnum og sett sig sjálfan í lífshættu. Þessi maður var Lárus Blöndal skipstjóri, sá frægi og mikli sjómaður.-------- Þetta endaði sem sagt eins vel og það gat: „Allir komu þeir aftur og enginn þeirra dó“. Þessi ferð verður mér ógleyman- legt ævintýri. Höfðuð þið nóg matvæli? Við höfðum nóg að borða, og við höfðum undarlega hluti um borð, sem ég veit ekkert hvaðan komu, enn þann dag í dag. Ég veit ekki hvaðan mat- vælin komu, en þar á meðal voru amerískir vindlingar, og þeim var óspart troðið í hendur Þjóðverjanna í Bergen. Þarna voru alls konar hlut- ir, sem alls ekki fengust, eins og ómælt smjör. Ég spurði aldrei um þetta, ef til vill vegna þess að önnur atriði voru efst í huganum. Þegar Gísli Jónsson andaðist hugsaði ég með mér: Nú er líklega farin sú vitn- eskja, hvaðan þetta kom. „Maðurinn lifir ekki án vina“. Hvert hinna mörgu áhugamála þinna er þér hugstæðast og hvers vegna? Ég held, að það sem hefur gripið dýpzt inn í líf mitt, sé áhuginn fyrir félagslífinu, samvistin við mér betri menn, eða góða menn, vináttan sem alltaf hlýtur að skapast, sem er grundvöllurinn í félagslífinu. Félags- lífið er líka til að skapa vináttu. Hvaða vit er í félagslífi ef engin vin- átta skapast? Maðurinn lifir ekki án vina. Þarna finnur hann þá, þarna á hann að rækta þetta. Inntak félagslífs hlýtur að vera vinátta og þroski. Þú þrosk- ast af því að umgangast aðra menn, skilja þá, leitast við að setja þig inn í þeirra hugsanagang, og ef til vill laga þig eftir þeim. Finna það, að þú hefur bætt þig á því að gera það. Ég hef þá trú á íþróttunum, að það sé bezta leiðin og ódýrasta fyrir þjóðfélagið til þess að gera eitthvað fyrir þegna sína, á þessu skeiði, og gegnum alla ævina. Ég held, að það sé bezt farið með þá peninga sem lagðir eru í þetta, af öllum þeim pen- ingum sem lagðir eru til félagsmála. Skynsamlegasta peningaráðstöfunin fyrir ríki og aðra sem þessum mál- um sinna, er að miðla þeim til þess- ara manna sem vilja standa í þessu og hjálpa þeim til að koma hlutun- um áfram. Svo kemur til hin óskap- lega mikla heilsuvernd, sem fer fram á þessum stöðum, og miðar að því að fyrirbyggja sjúkdóma. Hvað get- um við ekki sparað í fjármunum ef við fyrirbyggjum eða drögum úr sjúkdómum, ef við lítum á það, að hver einasti legudagur á sjúkrahúsi kostar um 3 þús. krónur kannske, og þó við spöruðum ekki nema 10% á ári af því sem annars væri, væri það óheyrileg upphæð, yfir allt landið. Manni var kennt að fara vel með peninga, sérstaklega ef aðrir ættu þá, eins og faðir minn sagði. Ég efa ekki að það er rétt sem við íþrótta- menn segjum, og þeir sem berjast fyrir framgangi íþrótta og líkams- ræktar. íþróttin sjálf er góð, en lík- amsræktin gefur af sér ótal jákvæð áhrif: Heilsuvernd, geðvernd, vernd frá glæpum og margt annað. Þetta verður ekki metið til peninga. Nú hefur þú mæðzt í mörgu, Úlfar, tekizt á við sitthvað og oftast komið út úr hverri raun sem sigurvegari, en hvað hefur valdið þér mestu hug- arangri í afskiptum þínum af félags- málum? Ja, það er alltaf leiðinlegt að tapa leik, sem manni finnst að maður ætti að vinna. Það er eins í lífinu og á leikvellinum. Það veldur mér mestu hugarangri, þegar menn eru að gera lítið úr íþrótt- unum og íþróttastarfseminni, menn, sem ekkert vita um tilgang þeirra og ekkert skilja um gang þeirra og ekki vilja nógu vel. Menn sem eru að draga það í efa að íþróttirnar séu góðar. Við höfum sannað það, að þær eru það. Sem sagt, það veldur mér hugar- angri þegar ég verð þess var, að íþróttirnar séu lítillækkaðar á ein- hvern hátt. íþróttahreyfingin á að vera voldug eik, og fá notið sín sem slík. Segðu mér, finnst þér það hafa verið þess virði fyrir þig persónulega að leggja orku og vilja í öll þessi áhugastörf þín á liðnum árum. Sú vinna sem ég vinn daglega, og sú menntun og þjálfun sem ég hef fengið, með hjálp minna foreldra og margra annara góðra manna, og þau tækifæri sem ég hef fengið til að læra eitthvað á ég allt öðrum að þakka. Ég gat ráðið sjálfur um mín áhuga- mál, þar þurfti ég ekki til annarra að sækja, það tók ekkert frá öðrum. Ég held að lífið væri ekki nema hálft eða eins og Egill sagði í Sonartorrek: „Ófullt og opið skarð“, ef maður hefði ekki áhugamál, eins og ég gat um áð- an, vináttu og slíkt. Ég vildi ekki hafa misst af einum einasta hlut í þessu, jafnt vonbrigðunum sem því góða, því að af vonbrigðunum lærir maður að temja sig, stilla sig, og af því góða líður manni aldrei illa, jafnvel það vonda og erfiða getur orðið manni til góðs. Við vitum það báðir að vöðv- inn þarf átak, það er eins með lífið. Ég hefði ekki getað farið betur með þennan tíma á nokkurn hátt. „Vertu heill gagnvart félagi þínu og félögum“. Hvað vilt þú ráðleggja ungum drengjum, sem vilja ná árangri í íþróttum ? Við getum hugsað okkur að ævin skiptist í tvö skeið, í raun og veru, það er skeiðið sem þú tilheyrir sjálfur sem iðkandi, og þá er varla hægt að krefjast af þér mikilla félagslegra framkvæmda, og síðan þegar þú ert sjálfur hættur og farinn að vinna fyrir þér, að þú gefir þér þá tíma til félagsmála. Nú eru áhugamálin óendanleg og ég er ekki að segja að allir eigi að fara í íþróttir, það er svo ákaflega margt annað til. Ég held þó, að hver ein- asti ungur maður eigi að þjálfa sig í einhverri íþrótt, sjálfs sín vegna, til þess að þjálfa upp líkama sinn. Það þýðir ekkert að fara að byrja allt í einu, þegar menn eru komnir að fertugu. Þetta verður að gerast frá byrjun, jafnóðum og þroskinn kemur, annars er lítið vit í þessu. Menn segja oft að þeir hafi ekki tíma, en menn hafa alltaf tíma, og menn eiga að hafa tíma til að hugsa um sjálfa sig líka. Maður hlýtur að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.