Valsblaðið - 11.05.1972, Qupperneq 50

Valsblaðið - 11.05.1972, Qupperneq 50
48 VALSBLAÐIÐ Áður fyrr fór ég oft að horfa á leiki, sérstaklega stærri leiki og lands- leiki, en í seinni tíð læt ég mér nægja að horfa á sumar íþróttir í sjónvarp- inu og hlusta á útvarpslýsingar. Og ekki vantar að ég fái greinagóða skýrslu um leiki, sem bóndinn fer að horfa á og þrautþekki þar af leið- andi allar mögulegar og ómögulegar „taktíkur". Nú veit ég, og raunar flestir Vals- menn, að Sigurður bóndi þinn hefur starfað mikið fyrir Val á umliðnum áratugum og gerir enn. Hvaða áhrif hefur þetta á þig og hvert er við- horf þitt til slíkra áhugamála? Ég játa það hreinskilnislega, að ég hef ekki alltaf verið sérlega ánægð með, hvað hann hefur eytt miklum tíma, að mínu viti, í störf fyrir Val, og fundist stundum, að hann léti ým- islegt sitja á hakanum hér heima fyrir. Hann hefur heldur ekki getað vanið sig á að vinna skikkanlegan vinnudag í sínu daglega starfi, svo að viðstaðan heima hefur oft verið stutt, sérstaklega meðan hann stund- aði æfingar, tók þátt í leikjum, var í stjórn, nefndum, ráðum og guð má vita hvað, og þegar sumu þessu lauk tók Sigurður til við mokstur, smíðar, málun og þess háttar. Mér er hins vegar ljóst, að ef menn eru í svona félagsskap á annað borð, verða þeir allir að vinna að félagsmálunum að meira eða minna leyti og það eru ábyggilega geisimikil störf, sem unn- in eru í félögum eins og Val og þarf marga menn til. Ég veit, að Sigurði hefur verið það mikið áhugamál, að geta lagt sinn skerf af mörkum í þágu Vals og hefur haft mikla ánægju af samstarfi við marga menn í félaginu og þar eru hans beztu kunningjar, svo að ég hef látið mér þetta sæmi- lega líka og glaðzt yfir, þegar vel hefur gengið og einhverjum árangri hefur verið náð, reynt að vera hug- hreystandi, þegar á móti hefur blásið, t. d. þegar Valur hefur verið burst- aður. Nú, svo hefur hann verið að trúa mér fyrir því nokkur undanfar- in ár, að hann væri alveg að hætta þessu stússi. Hefur þú haft áhugamál utan heim- ilisins ? Ég held mig mest við heimilið og hef lítið sinnt félagsstörfum. Ég var að vísu skáti í gamla daga og hef nokkra undanfarna vetur verið í hópi eldri kvenskáta, sem koma saman einu sinni í viku til að vinna að gerð muna á bazar, sem haldinn hefur verið árlega til styrktar kvenskáta- hreyfingunni. Einnig förum við í eitt ferðalag á hverju sumri. Þetta er skemmtileg tilbreyting, því að þarna er glatt á hjalla og gaman að hitta gamla kunningja. í þessu sambandi kemur mér í hug, að mig hefur oft furðað á því, hve eldri Valsmenn hitt- ast sjaldan á góðri stund. Það væri ábyggilega mikill styrkur fyrir félag- ið að hafa meira samband við þá. Ég hef að vísu séð marga þeirra suð- ur á Hlíðarenda 11. maí og haft gam- an af að sjá, hve þeir skemmta sér vel, þegar þeir eru að rifja upp gaml- ar minningar og sigra. Það mættu þeir gjarnan gera oftar en 11. maí (og hafa konurnar með). S.l. sumar bjó hjá okkur einn af fararstjórum norsku piltanna, sem Valur tók á móti, hann var faðir eins þeirra. Fyrir nokkrum árum bjó hjá okkur dönsk kona, sem var ein af fararstjórum piltaflokks, sem heim- sótti Val. Þetta bendir til þess, að erlendis láti foreldrar sig einhverju skipta störf félags þess, sem börn þeirra eru í. Mér hefur dottið í hug, hvort ekki sé skynsamlegt fyrir félög eins og Val að hafa meira samband við foreldra krakkanna og fá þá til starfa. Ég held t. d. að það væri mjög gott fyrir félagið og foreldra barn- anna, að það væri jafnan einn faðir (eða móðir) með í hverri ferð yngri flokkanna, hvort sem farið væri langt eða skammt. Mig langar til að geta þess, ein- mitt í sambandi við störf félags- manna, hve gaman hefur verið að sjá handboltastúlkur Vals annast veit- ingar 11. maí og á Valsdaginn af mikl- um myndarbrag. Ég er viss um, að konum margra eldri Valsmanna myndi vera ánægja að því að leggja til kökur við slík tækifæri. Hvernig fannst þér, þegar Sigurð- ur kom heim eftir unninn leik eða mót? Það er nú orðið svo langt síðan, að ég er næstum búin að gleyma því. Jú, sannarlega var það skemmtilegt og nokkur uppbót á fjarverunni. Ann- ars heyrði ég það á fótatakinu og heyri enn, þegar hann kemur heim af kappleik, hvernig Val hefur vegn- að. Ég spyr oftast, hvernig hafi geng- ið og annað hvort er svarið: „Auð- vitað vann Valur, hvernig spyrðu, kona“, eða svarið kemur seint. Hafa börnin ykkar stundað íþrótt- ir? Það er varla hægt að segja það. Dóttir okkar var í sundi hjá Ármanni og náði sæmilegum árangri en hætti of fljótt. Sonur okkar var, eins og allir strákar, nokkuð í fótbolta suð- ur á Hlíðarenda, en hafði ekki næg- an áhuga, þegar á reyndi. Svo er hér ein svolítil samvizku- spurning. Heldur þú, að Sigurður hefði verið betri eiginmaður, ef hann hefði setið heima öll kvöld eftir vinnudag? Það er erfitt fyrir mig að svara þessu, ég hef svo litla reynslu af því ennþá. Nú, hann hefur eiginlega verið ágætur alla tíð, eða þessi 28 ár, sem við höfum verið gift. En ég neita bví ekki, að ég hlakka til, þegar hann fer að verða meira heima. Knattspyrnusamband íslands heiðrar 3 Valsmenn. Á 1000. fundi sínum heiðraði stjórn KSÍ fimm menn æðsta heiðursmerki sínu, og þar af voru þrír Vals-menn. Þessir Valsmenn voru: Sveinn Ziiega, Einar Björnsson og Frímann Helgason. Hinir tveir voru Jón Magnússon og Björgvin Schram. Allir hafa menn þessir komið mikið við sögu knattspyrnunnar, á s.l. 40 árum, flestir bæði sem knattspyrnumenn og forustumenn. Er þeim hér árnað heilla með heiðurinn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.