Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 51

Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 51
VALSBLAÐIÐ 49 I»óriHur I*orhelsson; Landvinningar Að undanförnu hefur stjórn félags- ins unnið að því að fá meira land til starfsemi sinnar fyrir velli, sem þegar er orðið aðkallandi miðað við núverandi ástand og þá einnig með hliðsjón af því að gera má ráð fyrir að starfsemin vaxi í framtíðinni. 1 tilefni af þessu náði Valsblaðið í formann félagsins og bað hann að segja hvað framundan væri með auk- ið landrými fyrir félagið, hvað liði áætlunum um framkvæmdir um vall- argerð og eins hvort bygging íþrótta- húss hefði komizt á dagskrá hjá stjórninni, en allt þetta er nokkuð rætt innan félagsins um þessar mundir. Fer hér á eftir það sem Þórður hafði að segja um þetta efni: Það hefur alltaf verið kappsmál Valsmanna að eiga sín svæði sjálfir og geta þannig skapað sínu fólki að- stöðu, sem viðunandi mætti teljast hverju sinni. Þeir, sem hafa fylgzt með sögu Vals fyrr á árum, vita, að þetta gekk brösótt, þar til árið 1939 að fest voru kaup á Hlíðarenda. Þetta land var um 5 hektarar og var mikið afrek á sínum tíma og það er það sem Valur býr að í dag. Fyrstu árin var farið rólega í framkvæmdir, en svo 1948 til 1958 eða á 10 ára tíma- bili, að þá er hafizt handa um félags- heimilið, svo kemur malarvöllurinn, þá grasvöllurinn og síðan íþrótta- húsið. Þetta var mikið átak sem þarna átti sér stað. Síðan hefur verið farið hægar í sakirnar, sléttaðar smá gras- spildur og gerður asfaltvöllur fyrir handknattleik, sem gerir handknatt- leiknum kleift að æfa úti að sumar- lagi. Undanfarin ár hafa heyrzt raddir um það innan félagsins, að kominn væri tími til þess að athuga ný at- hafnasvæði fyrir félagið og var það álit manna, að knattspyrnuveilirnir væru ekki nógu margir. Fyrirrenn- ari minn, Ægir Ferdinandsson, byrj- aði að vinna að málinu og kom það í hlut minn og núverandi stjórnar að halda málinu áfram. Vitað var að Landsspítalinn var að sækjast eftir athafnasvæði fyrir vestan gamla flug- vallarveginn, og þótti rétt að fylgj- ast vel með gangi mála þar. Upphaf- lega var hugsað til þess að Valur gæti ef til vill fengið vallarstæði þar, en það kom fljótt fram, að þar mundu ekki geta orðið framtíðarvellir. Þá var horfið að því, að reyna að fá framlengingu til vesturs frá núver- andi malarvelli. Við höfum fengið með okkur í þessar áætlanir allar Guðmund Kr. Guðmundsson arkitekt, sem hefur reynzt okkur hinn nýtasti maður á alla lund. Við höfum haft mjög vinsamleg samskipti við borgarverkfræöing, sem hefur viljað greiða götu okkar eftir beztu getu og mætt skilningi hjá opinberum aðilum hér í borginni. Nú er málum þannig komið, að við höfum fengið munnlegt leyfi til að byggja völl við endann á malarvell- inum til suðvesturs. Búið er að gera teikningu af vellinum, holræsum og þess háttar, og má segja að fyrir liggi samþykki af hálfu íþróttasjóðs. Þá liggur fyrir kostnaðaráætlun um byggingu vallarins og er hún 4,5 millj. króna. Er þá gert ráð fyrir að stærð vallarins verði 120x90 m, og mætti þá æfa á honum þversum. Hvenær hafizt verður handa um þessar framkvæmd er ekki gott að segja, fyrst verða allar teikningar og leyfi að liggja formlega fyrir, en að því fengnu býst ég við að það drag- ist ekki lengi. Þá má geta þess að Jóhannes Berg- steinsson hefur heitið því, að vera okkur innanhandar með framkvæmd- ir á vellinum, en hann var eins og allir Valsmenn vita, mikill framá- maður í framkvæmdum Vals 1948 til 1958, og Úlfar Þórðarson hefur sýnt mikinn áhuga fyrir málinu og er það mikill fengur fyrir Val að njóta áhuga og krafta slíkra manna. Ég held að ég megi fullyrða, að Valur hafi all- góða fjárupphæð til að byrja á þessu verki, þannig að það ætti ekki að þurfa að tefjast mikið þess vegna. Gerðar voru tvær kostnaðaráætl- anir, önnur þar sem gert er ráð fyrir að sprengja klöpp í hliðinni sem veit að Öskjuhlíðinni og minnka þar með uppfyllingu sem þarf í hliðina fjær, því að allmikill halli er þar sem völl- urinn er staðsettur og er sú áætlun mun lægri. Hin áætlunin er, að fylla og hækka völlinn það mikið, að klöpp- in fari í kaf. Eins og ég gat um áðan er ekki um að ræða vallarstæði vestan gamla flugvallarvegarins að svo stöddu, en ég er sannfærður um að við fáum eitthvert viðbótarsvæði þar, þegar þar að kemur, þó ekki sé hægt að ákveða það nú. Samskiptin við Landsspítalann hafa verið mjög vinsamleg og þeir vilja hafa okkur þarna í námunda við sig, hafa áhuga á því og hafa boðizt jafnvel til þess að þarna yrðu vellir inn á milli hjá þeim eða æf- ingasvæði. Geta má þess, að í framtíðinni eru hugsaðar miklar breytingar á vega- kerfinu í kringum Hlíðarendasvæðið. Miklabrautin á að færast nær okkur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.