Valsblaðið - 11.05.1972, Page 66

Valsblaðið - 11.05.1972, Page 66
64 VALSBLAÐIÐ „pistilinn", þegar þeim fellur ekki frammistaðan, en það veit enginn hvað þær segja, eða hver áhrifin verða. Þetta eru konurnar sem fundu upp á því snjallræði, að stofna ,,klúbb“ og bæta sér upp einveruna með orð- um og athöfnum á heimilum sínum til skiptis. Þetta eru konurnar, sem eiga menn- ina sem kallaðir eru: „Andlit félags- ins“, og þurfa því mikinn tíma til að „snyrta það og fegra“! Við óbreyttir Valsmenn getum því verið þeim þakklátir fyrir það, að gera mönnum sínum mögulegt að halda „andlitinu“ eins hreinu og efni leyfa, og það er ekki þeim að kenna þó okkur finnist stundum að það gæti verið glæsilegra! Eins og venjulega þótti ritstjórn blaðsins sjálfsagt að fregna, hvernig gangur mála í „klúbbnum“ hefur ver- ið á síðasta ári. Það vill líka svo heppilega til, að enginn nema full- trúi frá blaðinu, að því er bezt er vitað, fær að komast upp á það „krambúðarloft", að hlusta á dag- skrá kvöldsins, skoða hannyrðir, fá nýjustu fréttir úr bænum o. fl., að ógleymdum frábærum veitingum, sem ekki miða að því að varðveita „lín- urnar“. Það vildi nú svo til, að þegar við heimsóttum „klúbbinn" að þessu sinni, var fundurinn haldinn á miðju áhrifasvæði KR, eða nokkra metra frá sjálfum höfuðstöðvum þeirra, en það breytti engu. Orð og andi var þannig, að maður sannfærðist um að þarna væri eitt Valsvígið. Það var sannarlega glaður hópur og líflegur, sem þarna sat með sauma sína og kenndi þar margra grasa um gerð og efni. Kliðurinn frá umræðum kvöldsins fyllti fangið, þegar inn var gengið, því að frá mörgu var að segja, enda gerist margt í höfuðborg eins og Reykjavík. Því miður varð að taka allt slíkt útaf dagskrá, þegar tekið var til við að ræða mál „klúbbsins" frá árinu sem leið og áætlanir um það komandi. Það hefur verið ákaflega gaman að hittast, sögðu þær einum rómi, og fjörið mun meira en í fyrra, bættu þær við. Umræður hafa snúizt um allt milli himins og jarðar og margt umræðuefnið krufið til mergjar. Að loknu „klúbbstarfinu" á liðnu vori var efnt til mikillar samkomu heima hjá einni „ekkjunni", og síðan farið í danshús og „djammað" þar meðan hægt var, en síðan haldið heim og haldið áfram þar, og þeim kom sam- an um það, að þetta hefði verið dá- samlegt, og til að fyrirbyggja mis- skilning, fengu bændurnir að vera með í það sinn. Ætlunin hafði verið að fara til Mallorka, svona í leiðinni og bændurnir færu í Evrópukeppni af einhverju tagi. En þeir unnu eng- an rétt til Evrópukeppni, og því fór sem fór. Þá tókum við til okkar ráða og fórum með þá austur í Þjórsárdal um verzlunarmannahelgina og héld- um þeim þar og létum þá æfa á gras- bölum, ef það mætti verða til þess að herða þá eitthvað upp og hafi þeir harðnað eitthvað undir okkar „komm- and“ þarna í Þjórsárdalnum, þá bend- ir samt allt til þess að þeir hafi lin- azt upp jafnskjótt og þeir komu í bæinn, ef leikir þeirra eru teknir til viðmiðunar. En hvað um það, þetta var afskaplega skemmtileg útilega, þarna voru varðeldar á kvöldin, þar sem við sjálf vorum skemmtikraft- arnir. Veðrir var yndislegt, og kvöld- húmið hjúfraði sig upp að okkur. Það mátti sjá á andlitunum, að róm- antíkin hafði ráðið þar ríkjum og að allar skammir fyrir lélega frammi- stöðu í leikjum voru foknar út í veð- ur og vind og eftir var aðeins það, hvað væri dásamlegt að vera til. Það mátti á þeim heyra að senni- lega yrði farið næsta sumar á sömu slóðir, því að fyrir því væri þegar séð, að ekki yrði úr Mallorkaferð næsta ár, við bíðum þá bara, þar til hitt árið. Hvað munar um eitt ár! Nú bíðum við bara eftir snjónum, því að í vetur ætlum við að fá Vals- skálann á leigu fyrir okkur og hlökk- um til að veltast þar í snjónum, eða réttara sagt að vera á skíðum. Aðr- ar lögðu til, að heldur yrðu notaðar þotur, a. m. k. hafðar með, þær væru auðveldari viðfangs. Var mikill hug- ur í hópnum, að komast í þetta snjó- ævintýri. Verða eiginmennirnir með og þau börn sem ferðafær eru. Við vonum svo að snjórinn komi og að þessi „stóra fjölskylda" fái notið lífsins í „faðmi fjalla blárra“ Það var líka ánægjulegt að heyra að þessar geðþekku ungu konur hafa, ef svo mætti segja, færzt skrefi nær Val, en áður, og var þó nokkuð að gert. Þegar meistaraflokkur Vals lék afmælisleik sinn í tilefni af 60 ára afmælinu, stóðu þær fyrir beina, sem veittur var að leik loknum. Bökuðu þær sjálfar kökurnar og komu með til veizlunnar og önnuðust alla fram- reiðslu, með miklum myndarbrag, 1 Félagsheimili Vals. Margt fleira var rætt um „klúbb- inn“ og málefni hans undir kaffi- drykkju og meðlæti, sem var í „sup- er“-flokki. Og þegar undirritaður spurði um fjölgun, stóð ekki á svar- inu: Eitt komið og annað hérumbil, hún er kannske á leiðinni á fæðingar- heimilið! En þetta var allt misskiln- ingur, því að hann var að spyrja um fjölgunina í sjálfum „klúbbnum"! Áfram Valur! Viggó Helgason. Þegar Frímann kom að máli við mig og bað mig að skrifa nokkur orð í Valsblaðið — minningar af Vellin- um — eins og hann orðaði það, komst ég í vanda. Ég vil allt fyrir Val gera, en sjald- an hef ég haft tækifæri til að beita mín. Strax í yngstu flokkunum kom það í ljós, að alltaf voru yfir 22 jafn- aldrar mínir, sem skyggðu á mig, menn eins og Albert, Snorri, Anton og Sveinn, svo nokkur nöfn séu nefnd. Ég komst því aldrei í lið, ekki einu sinni á varamanna bekk. Þetta hafði ég upp úr að vera í bezta félaginu! En á einu sviði hef ég þó oft látið til mín taka. Ég æpi með Val á vellin- um. Og stundum er það sóló hjá mér. Nú er ég loksins kominn að efninu. Við Valsmenn verðum að endurreisa gamla góða Vals-kórinn, sem á gull- aldarárum félagsins blátt áfram hélt stemmningunni á vellinum uppi, þeg- ar Valur keppti og vann sína stóru sigra. Ég man þegar Sveinn Zoöga var að smala mönnum saman og sagði: „Komið í Vals-kórinn, í kór- inn!“ Og svo var æpt af öllum lífs og sálarkörftum: Áfram Valur. Og menn fóru hásir heim. En nú er öldin önnur. Nú eru Vals- menn of fínir til að láta heyra í sér. Dettur nokkrum manni í hug, að KR væri enn í I. deild, ef Egils rak- ara nyti ekki við. Það er honum, en ekki Ellert, sem KR-ingar eiga líf sitt að þakka! Fyrir næsta keppnistímabil verðum við að skipuleggja starfið og koma kórnum í gang og láta ekki bara KR- inga og utanbæjarmenn hvetja sín félög. Um leið og ég óska Valsmönnum og öðrum góðum mönnum farsæls árs, segi ég: Áfram Valur! Viggó Helgason.

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.