Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 67

Valsblaðið - 11.05.1972, Síða 67
VA LSBLAÐIÐ 65 „Fálkarniru flugu um útnes og óbyggðir Hvrmann Elonnannsson: Á mörgum undanförnum árum hef- ur oft verið um það rætt, að nauð- synlegt væri að halda saman þeim knattspyrnumannahópi í Val, sem hefðu lagt skóna á hilluna og gefa þeim kost á að leika sér í hópi gömlu félaganna eftir því sem tími og heilsa leyfði. Við og við hafa verið gerðar smátilraunir til þessa, en það hefur aldrei orðið langlíft og koðnað fljót- lega niður. I sumar var farið af stað enn einu sinni, og þá undir aðalforustu Her- manns Hermannssonar, þar sem safn- að var saman þessum gömlu „hetj- um“ nokkuð til reglubundinna æf- inga. Fljótlega fór að fréttast um kappleiki þessara kappa, við erlend skip sem komu til Reykjavíkur. Frétt- ir bárust um það, að flokkurinn hefði leikið við þriðju deildar lið í Grinda- vík og víðar. Þá heyrðist að þessi fjölmenni hópur hefði farið á slóðir Eyvindar og Höllu, þ. e. um óbyggðir landsins, og þá auðvitað með konur sínar. í tilefni af orðrómi þessum, sner- um við okkur til Hermanns Her- mannssonar og báðum hann um að segja svolítið frá þessari starfsemi hinna öldnu kappa. Hvernig byrjaði þetta hjá ykkur, Hermann ? Þórður Þorkelsson formaður Vals skrifaði mér bréf og fór þess á leit við mig, að ég tæki þátt í að vinna að svokölluðu „trimmi“ innan Vals. Hér var mikil ,,trimm“-alda þá, og mikið um það rætt og ritað. Ég féllst á að reyna þetta og tók m. a. þátt í ráðstefnu á Hótel Sögu um þetta mál- efni. Farið var í sundlaugar og voru myndir af þessu öllu í sjónvarpinu og mikið um að vera. Þegar til kom leizt mér nú ekki alveg á þetta form eða nafnið, ég vildi kalla þetta: rölt, brölt, skrölt eftir því á hvaða ald- ursstigi menn væru, að fara að hlaupa svona í hálfgerðri keppni gæti farið illa ef menn á gamals aldri færu að ofkeyra sig. Nú hjá okkur fór það þannig, að við fórum að æfa knatt- spyrnu nokkuð reglulega og áfram- haldið varð svo það, að við fórum að keppa, lékum t. d. tvisvar við skip- verja af Regina Maris, vorum boðnir þar um borð eftir leik, og þeir til okkar. Við höfum svo fengið bréf frá þeim, þar sem þeir þakka fyrir samskiptin. Við lékum við franska flotann og vorum við alltaf þeir sem sigruðu. Albert Guðmundsson var með okk- ur, og gerði þar alltaf mestu „lukk- una“, eins og hans var von og vísa. Síðan lékum við gegn Grindvíkingum, sem eru þriðju deildar lið, bæði heima og heiman, en Gunnar Gunnarsson, okkar gamli landsliðsmaður þjálfaði það lið í sumar, og unnum við það líka. Þetta varð til þess, að nú höf- um við fasta æfingatíma á laugar- dögum í framtíðinni, enda er það svo, að hópurinn er alltaf að stækka og við höfum stórar áætlanir fyrir næsta sumar, sem við ætlum að vinna að. Gerðuð þið meira en að keppa í sumar, til þess að halda hópnum sam- an? Við fórum í fjallaferð, sem stóð í þrjá daga og nutum forustu okkar gamla og góða knattspyrnumanns Egils Kristbjörnssonar, sem er allra manna kunnugastur öræfum lands- ins, þekkir hvert fjall, sléttu, leiti og læki. Fórum við í Landmannalaugar og þar í kring, höfðum við konur okk- ar með, og var þetta ein skemmti- legasta ferð sem ég hef farið innan- lands. Það er skömm frá því að segja, að maður hafi ekki séð hálendið, og allir komu glaðir og reifir heim. Ég er alveg ákveðinn í því, ef ég verð við þetta riðinn næsta sumar, að slík ferðalög upp á hálendið verði á áætl- un okkar þá. Snorri Halldórsson var með og söng og spilaði á harmoniku sína og hélt uppi miklu fjöri. Eitt broslegt atvik kom fyrir í þessari ferð okkar. Einn af þátttak- endum í ferðinni var Sigurhans Hjart- arson, snjall handknattleiksmaður og lék í nokkur ár í meistaraflokki í knattspyrnu. Hann þurfti að fara örna sinna, sem ekki var í frásögur færandi, en komið var kolniðamyrk- ur, og gat verið villugjarnt á fyrir- heitna staðinn, enda góður spölur. Mun Sigurhans hafa þótt það heldur fyrirhyggjulítið, að æða út í myrkrið og geta átt von á því að týnast, og því mundi fylgja dauðaleit margra manna og áhyggjur allra viðstaddra. Nú voru góð ráð dýr, því Hans hefur aldrei verið bendlaður við það að gef- ast upp. Þá verður fyrir honum sokk- ur allmikill, og fær hann þá þann innblástur, að með honum geti hann bjargað sér. Býður hann nú ekki boð- anna, því að mikið lá á, og tekur að rekja upp sokkinn góða, og bindur síðan endann í hurðarhúninn, tekur síðan rétt mið að hans áliti í áttina til fyrirheitna staðarins. Seiglast hann nú af stað og rekur jafnóðum upp sokkinn og leggur á jörðina. Heldur þetta áfram góða stund. Þá kemur það, í þann mund er sokkur- inn var á enda rakinn, að hann finn- ur fyrir sér útihúsið, þetta fyrirheitna land, og var það honum á margan hátt mikill léttir. Þegar Hansi hafði athafnað sig þar og allt gengið vel, tekur hann að lesa sig heim á leið, og hafði sem vegvís- ir bandið úr sokknum góða, og kom heilu og höldnu að réttum dyrum, og svaf vel alla nóttina. Morguninn eftir þegar fólk tók að klæðast þótti það miklum tíðindum „Fálkarnir", frúr og fylgdarlið við Landmannalaugar. Forustu-„fálkinn“, Hermann Hermannsson, með dökk gleraugu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.