Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 62
62 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
er lengi var kaupmaður á Reyðarfirði. Er margt
manna frá honum komið, bæði hér á landi og heima á
íslandi. Þórólfur ólst upp hjá foreldrum sínum,
sem lengst af bjuggu í Litlu-Breiðuvík í Reyðarfirði,
þar til hann kvæntist 1886 Margréti Richardsdóttur,
frændkonu sinni. Þau voru systkinabörn. Þá fór
hann að búa á Eyri við Reyðarfjörð, þar bjuggu >au
8 ár. Þaðan fluttu þau til Fáskrúðsfjarðar, þar
stundaði Margrét ljósmóðurstörf þar til 1895 að
hún fórst í snjóflóði er hún var að vitja sængurkonu,
að næturlagi. Síðari kona Þórólfs var Ólafía Þor-
steinsdóttir bónda á Höfðahúsum í Fáskrúðsfirði.
Þórólfur átti eina dóttur áður en hann giftist sem
Þórhalla heitir. Hún er gift Sigurði Arngrímssyni
og búa þau við Elfros í Sask. Einkadóttir Þórólfs og
Margrétar, heitir Valgerður, er hún gift hérlendum
manni við Ilford í Manitoba. Sonur Þórólfs og síðari
konu hans heitir Þorsteinn. Hann er giftur hér-
lendri konu, og býr á landi föður síns.
Þórólfur fluttist vestur um haf 1903. Dvaldi í
Winnipeg fyrstu árin, en flutti þaðan til Gimli, og
stundaði þar fiskiveiðar nokkur ár. Hingað flutti
hann 1912 og nam land á 13—27—10 og bjó þar 22
ár, þar til kona hans lézt. Var hann þá orðinn
blindur og flutti til Þorsteins Gíslasonar, nágranna
síns og hefir dvalið þar síðan.
Þorsteinn Gíslason er fæddur á Hnappavöllum í
Öræfum. Faðir hans var Gísli Þorsteinsson bóndi á
Reynivöllum Gíslasonar á Uppsölum, í Suðursveit.
Kona Þorsteins er Pálína Halldórsdóttir fædd á
Gimli 1893. Foreldrar hennar eru: Halldór Brynj-
ólfsson frá Kárastöðum á Vatnsnesi og Hólmfríöui
Eggertsdóttir Helgasonar frá Helguhvammi í sömu
sveit. Árið 1916 fluttust þau frá Gimli til Elm
Point, og námu land á N.E. 24—27—10 og hafa búið
þar síðan. Börn þeirra eru: Guðný; Halldóra; Gísli
og Garðar. Þau eru nú öll nær fullþroskuð og eru
heima hjá foreldrum sínum.