Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 78
78 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Kona Jóhannesar er Bergþóra Einarsdóttir Sig-
urðssonar, systir Skapta sem getið er í næstu grein
hér á undan. Hún er fædd 13. des. 1905. Börn
þeirra eru: Jórunn, Norma, Thelma, Gerald Magnús
og Svafa. Jóhannes býr góðu búi og farnast vel.
Gísli Goodman er fæddur í Winnipeg 1893.
Faðir hans var Kristinn Guðmundsson, en, meira
veit hann ekki um ætt sína. Hann nam land 1913 á
N.E. 10—25—9 og hefir búið þar síðan, oftast ein-
búi. Siðastliðið sumar kvæntist hann konu af
Indíána ættum en stuttar urðu samfarir þeirra, því
hún gekk frá honum eftir stutta sambúð. Gísli hefir
hænsnahjörð mikla og nokkuð af gripum. Hann er
ólíkur flestum öðrum mönnum í háttum, en starfs-
maður mikill.
Narrovvs-pósthérað
Þar eru nú aðeins 3 búendur íslenzkir en áður
voru þeir fleiri en hafa flutt burtu, og sumir dánir.
Jóhannes Kernested er fæddur 27. sept. 1895
Faðir hans var Páll Kernested sem var með fyrstu
landnemum í þessari bygð. Er ættar hans getið í
þætti Narrows-bygðar 1914. Jóhannes ólst upp hjá
föður sínum og byrjaði búskap í félagi við hann fyrir
nokkrum árum, en hefir búið þar einn síðan faðir
hans lézt. Kona hans er Arnþóra Davíðsdóttir,
Gíslasonar, fyrrum bónda við Hayland, og er hans
getið í þætti Narrows-bygðar 1914. Hún er fædd 10.
marz 1906. Börn þeirra eru: Leonard, Holberg,
Cern og Páll. Hann nam land á S.W. 5—24—9 og
síðari heimilisrétt á N.W. 7—24—9. Auk þess nam
hann land sem heimkominn hermaður á N.W;
5—24—9 og keypt hefir hann land á N.W. 6—24—9.
Jóhannes er dugnaðarmaður og hefir stórt bú.
Guðmundur Þorkelsson er fæddur á Stóruborg í
Grímsnesi 6. des. 1866. Faðir hans var Þorkell Jóns-
son, bóndi þar, en móðir hans var Ingibjörg Torfa-