Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 74
74 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
við það og gekk í herinn 1916 og var í skotgröfunum
til ófriðarloka. Þá byrjuðu þeir bræður aftur bú-
skap á leigujörðum í Siglunesbygð, og bjuggu þar
góðu búi þar til 1931, að Jón keypti 3 lönd á 24—24
—9 og flutti á þau og hefir búið þar síðan.
Kona Jóns er Margrét Björnsdóttir, Arnfinns-
sonar, sem nú er á Lundar, og er hans getið í þætti
Sigluness 1914. Þau eiga fjögur börn sem heita:
Ágúst, Kristján, Árni og Helga. Jón er hæglátur
maður og gætinn, hagur vel og þrifnaðar maður.
Eiríkur Vigfússon er fæddur á Seyðisfirði eystra
1897. Foreldrar hans eru Pétur Vigfússon, frá
Sjávarborg í Seyðisfirði og Anna Hjálmarsdóttir,
ættuð af Suðurlandi. Eiríkur fluttist vestur um haf
með foreldrum sínum 1912 og stundaði ýmsa vinnu
hér í bygðinni, þar til hann gekk í herinn 1916. Tók
hann þar þátt í mörgum mannskæðum orustum, þar
til hann varð fyrir eiturgasi, en komst þó til heilsu
aftur um stríðslokin. Hann nam land sem hermaður
á 24—24—9 og byrjaði þar búskap 1920, með styrk
þeim er hermönnum var veittur á þeim árum. Er
hann einn af þeim fáu sem hafa kunnað að hagnýta
þann styrk, því bú hans hefir blómgast vel, þrátt
fyrir mikinn kostnað til umbóta. Kona hans er
Guðrún Guðjónsdóttir, Rafnkelssonar; er hans getið
í þætti Álftvetninga. Hún er dugnaðar kona, og
hefir verið manni sínum samhent með að auka hag
þeirra. Börn þeirra eru: Guðjón, Hjálmar, Valdi-
mar, Þórey, Anna og Lilja.
Rögnvald Peterson er Færeyingur að ætt, en því
er hans hér getið að hann er kvæntur íslenzkri
konu, og hefir samið sig í öllu að háttum íslendinga.
Kona hans er Guðrún Guðmundsdóttir, systir Sigríð-
ar konu Þorsteins Jónssonar, þess er getið er í
næstu grein hér á undan. Hún er skólagengin, og
var áður barnakennari, eins og systir hennar. —
Þau munu hafa gifst um 1914, og reistu þá bú á land-