Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 73
ALMANAK 1938
73
sínum. Hann kvæntist 1935, Rachel Sandberg, er
hún svensk að ætt. Þau eiga tvo sonu Eirík og Guð-
mund.
Guðmundur Sigurðsson frá Ásmúla í Rangár-
vallasýslu. Hans er áður getið sem landnámsmanns
við Silver Bay. Hann brá búi fyrir nokkrum árum,
og flutti til Ashern. Þar stundar hann skósmíði og
aðgerðir á aktýjum, og verzlar með ýmsa hluti sem
þeirri iðn fylgir. Börn Guðmundar eru: Sesselja,
gift enskum manni; Hallur, kvæntur Margréti Sölva-
dóttur Sölvasonar; Margrét, gift Jóni Arnljótssyni
bónda við Oak View; Solveig, gift Olgar Larson,
svenskum bónda við Vogar; Sigurlaug, gift Jóh.
Austman við Silver Bay; Ágúst, ókvæntur.
Sigurður Brvnjólfsson er fæddur í Suðurkoti á
Vatnsleysuströnd’ 1897. Faðir hans var Brynjólfur
Sigurðsson frá Ásmúla, bróðir Guðm. Sigurðssonar
er getið er í næstu grein hér að framan. Sigurður
kom hingað til lands 1922, og hefir dvalið hér á
ýmsum stöðum. Hann nam land a S.E. 15—24—8,
en seldi það aftur og keypti land á N.E. 3—24—8 og
býr þar. Kona hans heitir Magdalena Jensdóttir, en
um ætt hennar hefi eg ekki frétt.
VI. þáttur—Oak View
Jón A. Johnson er fæddur í Norður Dakota 1891.
Faðir hans er Ágúst Jónsson á Lundar, Eyfirðingur
að ætt, en móðir hans er Margrét Árnadóttir, ættuð
úr Húnavatnssýslu. Er þeirra hjóna getið í þætti
Álftvetninga.
Jón fluttist með foreldrum sínum til Álftavatns-
bygðar þegar hann var 7 ára, og ólst upp hjá þeim
þar til 1910, að hann fluttist til Siglunesbygðar. Þar
stundaði hann fiskiveiðar og ýmsa vinnu nokkur ár,
og nam þar land, en það reyndist ekki nothæft, svo
hann gaf það inn aftur. Hann byrjaði þar búskap í
félagi við Matthías bróður sinn á leigujörð, en hætti