Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 90
90 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Árni benti honum á málleysurnar, en svo fór að lok-
um, að hann lét Árna alveg ráða með stíl á íslenzkum
embættisbréfum og skjölum.
Árið 1865 varð Árni bókhaldari við verzlun CarÞ
D. Tuliníusar, kaupmanns á Eskifirði og var þar til
haustsins 1868. Keypti hann þá gestgjafahús norður
á Vopnafirði, af Vilhjálmi Gunnlaugssyni Oddsen,
flutti þangað strax um haustið og giftist þar 20.
nóv. 1868, heitmey sinni, Kristjönu Soffíu (f. 12. jan.
1838) Stefánsdóttur bónda á Barði í Eyjafirði, Vig-
fússonar. Höfðu þau kynst hjá Tulinius kaupmanni,
en hjá þeim hjónum var Kristjana vinnukona nokkur
ár. Börn þeirra Árna og Kristjönu, sem náðu full-
orðins aldri og öll á lífi eru: 1. Sveinn, fæddur á
Vopnafirði 27. feb. 1869. (Sjá meira um hann í næstu
grein). 2. Andrés, fæddur á Vopnafirði (ekki í Fagra-
dal eins og stendur í Landnámsþætti Winnipegosis-
bygðar í Almanakinu 1930) 14. júlí 1871. Andrésar
er getið í Almanaki Ól. S. Th. 1930, og vísast hér til
þess. 3. Þórður, fæddur í Fagradal í Vopnafirði 21.
marz 1873; 4. Gunnlaugur, fæddur 21. maí á Eyvind-
arstöðum; 5. Rannveig Stefanía, fædd á Ytra-Hamri
í Vopnafirði 18. maí 1881. Hún er gift Jónasi Tóm-
assyni, bónda frá Þúfnavöllum í Hörgárdal í Eyja-
firði, Jóhannssonar. Þau eiga fimm börn á lífi.
Jónas og Rannveig Stefanía hafa búið ekki all-langt
norðaustur frá Elfros í Saskatchewan í mörg ár, en
eru nú fyrir eitthvað tveimur eða þremur árum flutt
norður til Smeaton, Sask., og búa þar nú. Bræðranna,
Þórðar og Gunnlaugs verður nánar getið síðar( í
þessum þáttum.
Árna græddist nokkurt fé á veitingahúsinu; þó
seldi hann það eftir 4 ár, keypti bús-áhöfn, fékk jörð
til ábúðar og gerðist bóndi. Bjuggu þau hjón fyrst
eitt ár (1872—73) í Fagradal í Vopnafirði, en síðan
lengst af á Eyvindarstöðum og Hamri, í sömu sveit.
Sumarið 1892 fluttu þau hjón til Ameríku með tvö
yngri börn sín, Gunnlaug og Rannveigu Stefaníu;