Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 58
58 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
ára að aldri. Var hugsjónamaður með mentalöngun;
lauk hann kennaraprófi innan tvítugsaldurs, og
kendi skóla þar til hann innritaðist í herinn. (Sjá
æfiminningu hans í Hermannaritinu bls. 444).
Sigmar Þórarinn Friðbjarnarson er fæddur á
Björgum í Köldukinn í Þingeyjarsýslu 19. júlí 1870.
Foreldrar hans voru: Friðbjörn Jónsson og kona hans
Margrét Jónsdóttir, er hann bróðir Kristjáns sem
hér er getið að framan. Kona hans er Ólöf Magnús-
dóttir Jóakimssonar, er var nafnkunnur yfirsetu-
maður. Jóakim bjó á Hússungsstöðum í Fjörðum í
Þingeyjarsýslu, er sagt að hann um sína daga hafi
tekið á móti 98 börnum. Móðir Ólafar var Ólöf Jón-
asdóttir. Ragnheiður hét kona Jónasar. Ólöf var
fædd á Tindranastöðum í Fjörðum 5. des. 1872 og
voru þau systkini 14. Þau Sigmar og Ólöf bjuggu á
Húsavík áður en þau fluttu vestur, sem var árið 1910.
í Glenboro hafa þau alt af búið síðan. Sigmar hefir
lengst unnið á járnbrautinni, en hefir nú látið af
þeim starfa fyrir aldurs sakir. Þau hjón eiga mynd-
arlegt og snoturt heimili, ber alt merki snyrtimensku
bæði inni og úti, hefir þeim farnast vel í lífsbarátt-
unni. Gott hafa þau lagt til félagsmála, verið sam-
vinnuþýð og ábyggileg í viðskiftum við fólk.
Tvo sonu eiga þau á lífi: 1. Sigtrygg, giftan hér-
lendri konu, býr í Stockton, Man., og stundar járn-
brautarvinnu; 2. Sigurð Friðrik, ógiftan heima hjá
foreldrunum, hefir útfararstofu í bænum. Dóttur
fulltíða mistu þau fyrir nokkrum árum, Þóru að
nafni .
Ellis Guðfinnur Sigurðsson, fæddur við River-
ton, Man., 1898. Foreldrar Björn Sigurðsson frá
Kirkjubóli í Fáskrúðsfirði og Jóhanna Antoníusdótt-
ir. Ellis fór ungur að heiman og út í heiminn, því
hann var strax á unga aldri reiðubúinn að heyja
stríð, og var æfintýragjarn. Hann innritaðist í her-
inn í stríðinu mikla í maí 1918 og sigldi til Englands
og var þar við heræfingar er stríðinu lauk. Eftir