Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 105
ALMANAK 1938
105
allvel máli farinn. Framan af árum fékst hann
talsvert við smáskamta lækningar og þótti heppnast
vel. Einnig stundaði hann járnsmíði, kom það sér
vel á frumbýlisárunum, þegar verið var að ryðja og
plægja landið, að geta fengið dengda exi eður plóg-
skera án þess að fara til bæjar með það kannske
langan og örðugan veg. — Þau hjón Árni og Ingunn
hafa eignast ellefu börn sem eru: 1. Guðrún, ógift
heima; 2. Ingibjörg, giftist 20. júlí 1935, Óskari Leo
Hergeirssyni Daníelssonar bónda í Álftavatnsbygð.
Þau eru búsett að Lundar; 3. Sigurrós Þórdís, ógift
heima; 4. Katrín Sigurbjörg, giftist 20. júlí 1935,
Guðlaugi Breckman, verzlunarmanni á Lundar; 5.
Jónatan, ógiftur heima; 6. Tómas, ógiftur heima; 7.
Jóhann Páll, ógiftur heima; 8. Þorsteinn Líndal, ó-
giftur heima; 9. Júlíus Hannes, ógiftur heima; 10.
Helga Stefanía, ógift heima.
Eitt barn mistu þau ungt. Einnig ólu þau upp
pilt, Björgvin Hallgrímsson að nafni, sem einnig er
ógiftur. Tóku hann til fósturs af fátækum hjónum ;
þau hétu Hallgrímur Eyjólfsson og Guðlaug Árnad.
(þá nýkomin að heiman af ísl.). Eftir fá ár fluttust
þau aftur til íslands og þar dó Hallgrímur fyrir
mörgum árum (þau voru ættuð af Austurlandi).
Börn Árna og Ingunnar eru öll vel gefin. Hafa
fjórir elstu drengirnir útskrifast af miðskóla bygð-
arinnar (high school) og tvær dætur þeirra útskrif-
ast af kennaraskóla og kendu um nokkra ára bil norð-
ur í Álftavatnsbygð, þær Ingibjörg og Katrín. Þau
eru öll sönghneigð og spila flest á hljóðfæri. Þar er
því oft glatt á hjalla, enda hefir félagslíf íslendinga
auðgast mikið við stuðning þeirrar fjölskyldu, því
hún er félagslynd öll í fylsta máta, (sjá félagsmál).
Landnemi S.A. 14 S. 31, 1-6
Gunnar Th. Oddsson
Gunnar er fæddur 6. jan. 1865 í Nes-hjáleigu í
Loðmundarfirði í Norður-Múlasýslu. —* Foreldrar