Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 77
ALMANAK 1938
77
búhöldur góður. Hann var sveitarstjórnarmaður
fyrir Oak View. Börn hans eru: Sigmar, Skapti,
Elmer, Jónas og Gísli.
í sambandi við ofanritað má geta þess, að faðir
Gísla, Sigurður Sigfússon fékk einkasyni sínum
land og bú í hendur, en keypti aftur land á
27— 24—-9 og býr þar litlu búi. — Sigurður er vel
efnum búinn, gætinn maður og greindur og manna
fróðastur um margt, því minni hefir hann með af-
'brigðum. Hann var einn af stofnendum sveitarfélags
Siglunesbygðar og var oddviti þess fyitetu árin.
Hann er oft þarfur ráðanautur í vandamálum, og
hefir mannhylli góða.
Skapti Sigurðsson er fæddur 15. okt. 1898. —
Faðir hans er Einar Sigurðsson frá Kálfafelli í
Austur-Skaftafellssýslu (nú bóndi við Oak View),
en móðir Skapta er Oddný Skarphéðinsdóttir kona
Einars, ættuð úr sömu sveit. Er þeirra lauslega getið
í hinum eldri þáttum. Skapti hefir ekki numið land,
en hefir keypt 3 lönd; austur helming af section 4
og S.W. þ4 af 9—24—9. Kona Skapta er Guðrún
Sveistrupsdóttir fædd 19. okt. 1909 og er ættar
hennar áður getið. Skapti hefir komið upp mynd-
arlegu heimili og á stórt gripabú. Börn þeirra eru
Bergþóra Evelyn Violet og Einar.
Jóhannes Johnson er fæddur í Hofsnesi í öræf-
um 1896. Foreldrar hans voru Magnús Jónsson bóndi
frá Hofsnesi og Jórunn Þorvarðsd. kona hans. Um ætt
þeirra hefi eg ekki getað fengið upplýsingar. Jóhan-
nes fluttist vestur um haf með foreldrum sínum 1903.
Settust þau að í Winnipeg, og þar ólst Jóhannes upp.
Hingað í nýlenduna fluttist hann 1931 og keypti hér
3 lönd. Eru tvö af þeim landnám þeirra bræðra
Einars og Eyjólfs Sveinssona er þá voru fluttir burtu
og er þeirra getið í þætti Narrows-bygðar 1914.
Lönd Jóhannesar eru: N.W. af 27—23—9, N.E. af
28— 23—9 og N.W. af 23—23—9.