Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 79
ALMANAK 1938
79
dóttir kona hans. Guðm. ólst upp hjá foreldrum
sínum til fullorðinsára, en fluttist þá til Reykjavíkur
og var þar tvö ár við trésmíðinám. Þaðan flutti hann
vestur um haf 1900, og dvaldi fyrsta árið á Big
Point við Manitobavatn, en þaðan flutti hann til
Helga kaupmanns Einarssonar við Narrows og hefir
dvalið þar síðan. Hefir hann oftast stundað fiski-
veiðar á vetrum, en trésmíði á sumrum framan af
árum, og græddist vel fé. Fyrir nokkrum árum
keypti hann landeign og byggingar Helga Einarsson-
ar á Narrows, sem þá var fluttur burtu. Eru það tvö
lönd heil a 20—24—10 og smærri partar af löndum
við vatnið. Hann hefir fullgert stórt steinhús, sem
Helgi var byrjaður á að byggja og búið vel um sig.
Guðmundur er ókvæntur og barnlaus. Hann er póst-
afgreiðslumaður í Narrows.
Sveinn Árnason Skaptfell er fæddur á Hofi í
Öræfum 6. okt 1859. Faðir hans var Árni Þórarins-
son, er lengi bjó í Vestmannaeyjum. Þórarinn var
sonur Sveins og Vilborgar Gissurardóttur í Svína-
felli, Illugasonar og ljótunnar Einarsdóttur, gamla
á Hnappavöllum. Móðir Árna Þórarinssonar var
Sigríður Árnadóttir frá Svínafelli í Öræfum. Móðir
Sveins, kona Árna, var Steinunn Oddsdóttir Gunn-
laugssonar, Oddssonar, Jónssonar, Höskuldssonar,
Einarssonar, prests í Eydölum, föður Odds biskups..
Kona Sveins er Elín Katrín Jónsdóttir, fædd 4.
des. 1863 á Steinaborg á Berufjarðarströnd. Jón
faðir hennar var skipstjóri á þilskipi er fórst með
allri áhöfn 1865. Faðir hans var Jón Jónsson frá
Núpi á Berufjarðarströnd, er margir nafnkunnir
menn eru frá komnir. Móðir Elínar var Elísabet Sig-
urðardóttir, Antoníussonar og Katrínar Einarsdótt-
ur frá Hamraseli í Sviðinhornadal.
Sveinn ólst upp í öræfunum, þar til hann var 25
ára. Þá fluttist hann til foreldra sinna í Vest-
mannaeyjum og byrjaði þar að læra trésmíði. Þaðan