Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 83
ALMANAK 1938
83
á barnsaldri með foreldrum sínum, og ólst þar upp til
fullorðinsára. Hann kvæntist 1922 Sigríði Kristins-
dóttur Magnússonar frá Hólum í Eyjafirði. Hún er
fædd 27. jan. 1903. Þau fluttu vestur um haf 1927
og hafa dvalið hér í bygðinni síðan. Gísli keypti
land 1936, í S.W. 8—23—9 og reisti þar bú. Börn
þeirra eru: Bjarni, Kristinn, Kristrún, Sigurður og
María.
VIII. þáttur—Vogar
Björn Eggertsson (hann heitir Sigurbjörn fullu
nafni) er fæddur 11. sept. 1895 í Fagraskógi í Eyja-
fjarðarsýslu. Faðir hans var Eggert Sigurgeirsson,
Stefánssonar frá Álftagerði í Skagafjarðarsýslu.
Kona Eggerts var Svanhildur Sigurbjörnsdóttir, Sig-
urðssonar frá Einarsstöðum í Kræklingahlíð.
Björn fluttist vestur um haf með foreldrum
sínum 1906 og ólst upp hjá þeim. Hann mun hafa
aflað sér meiri bóklegrar fræðslu en alment gerist,
á unglingsárunum, því skólamentun fékk hann ekki
aðra en á barnaskóla, og síðar 3 mán. nám í verzl-
unarskóla. Hann fékk atvinnu fyrir innan tvítugt
við verzlun hjá Armstrong Trading Co., á Vogar,
og vann þar til þess sú verzlan hætti. Mun þá hugur
hans hafa hneigst að verzlunarstörfum. Á þessum
árum nam hann land á N.E. 7—23—9 og náði eignar-
rétti á því landi, en 1922 seldi hann það land og
byrjaði þá verzlun á Vogar í félagi við Jón Bergman
frá Winnipeg. Fengu þeir leigð verzlunarhúsin á
Vogar, sem þá stóðu ónotuð. Með litlu fjármagní
var sú verzlun byrjuð en hún blómgaðist furðu
fl.jótt, og fám árum síðar keypti Björn Jóns hluta i
verzluninni og hefir rekið hana einn síðan. Verzlun
Björns hefir þrifist furðu vel, því á þessum árum
hafa fáir kaupmenn grætt. Hefir það hjálpað hon-
um að hann hefir ekki fest veltufé sitt í lánum og
aldrei haft meira í veltu en hann hefir ráðið við,
enda er hann reglumaður í viðskiftum. Fyrir