Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 81
ALMANAK 1938
81
Þessi þáttur er orðinn nokkru lengri en flestir
aðrir, því eg vildi ekki fella úr hina fróðlegu ætt-
færslu Sveins. Hefði helst óskað að fá hana eins
nákvæma frá fleirum en þess var ekki kostur.
YII. þáttur—Hayland, P. 0.
ólafur Magnússon er fæddur á Gili í Austur-
Fljótum í Skagafirði 30. sept. 1875. Faðir hans var
Magnús Björnsson bóndi þar, en móðir hans var
Anna Davíðsdóttir, bónda á Hóli í Flókadal. ólafur
fór frá foreldrum sínum þegar hann var 11 ára, og
dvaldi á ýmsum stöðum í sveitinni þar til hann var
fullþroskaður. Þá byrjaði hann sjómensku, oftast á
þilskipum og hafði þá atvinnu í 17 ár, alla þá tíma er
sjór var stundaður. Á vetrum lærði hann sjómanna-
fræði í heimahúsum og tók próf í henni á Akureyri
1905. — Ólafur fluttist vestur um haf 1911 og vann
á ýmsum stöðum þar til hann flutti hingað í bygð-
ina 1913. Hann kvæntist 1919 ekkjunni Margrcti
Halldórsson og settist að búi á landnámsjörð hennar
sem er N.E. af 13—23—10.
Margrét kona hans er fædd 6. apríl 1884 á
Kirkjubóli í Norðfirði. Faðir hennar er Hávarðu1
Guðmundsson bóndi að Hayland, er ættar hans getið í
þáttum þessarar bygðar 1914. Móðir Margrétar var
Helga (fyrsta kona Hávarðar) Jónsdóttir frá Kirkju-
bóli í Norðfirði. Hún var systir Þorsteins Jónssonar
er fyrrum var kaupmaður í Borgarfirði og víðar.
Fyrri maður Margrétar var Halldór Halldórsson frá
Westbourne og mun hans og bræðra hans vera getið
í þætti þaðan. Börn Margrétar af fyrra hjónabandi
eru: Helga, gift Óskari Sveistrup, bóndi að Vogar:
Frímann, ógiftur heima; Guðrún, gift Jóni S. John-
son, bónda að Vogar; Sesselja, gift Davíð Eggerts-
syni bónda á Siglunesi, og Björg, ógift heima. Börn
þeirra Ólafs og Margrétar eru: Anna og Soffía. —
Ólafur er póstafgreislumaður að Hayland.