Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 40
40 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
sagnir, ritgerðir og smælki. Mun tilgangurinn með
útgáfu hennar hafa verið aðallega sá að gefa kost á
skemtiriti er væri við allra hæfi og ekki krefðist
djúprar umhugsunar. Innan um efni hennar er
stráð íslenzkum sögnum af seinni tíðar mönnum, og
hjóðsögum, er gera ritið bæði læsilegra og gagn-
legra. Eru líkur til að sumum þeim sögum hafi
verið bjargað frá týnslu með því að vera birtar í
ritinu.
Árið 1910 setti Dana-stjórn vara-konsúl í Winni-
peg, fyrir umdæmi Sléttufylkjanna, og tilnefndi í
embættið Svein byggingameistara og fasteignakaup-
mann Brynjólfsson frá Vopnafirði í N.-Múlasýslu.
Tók Sveinn útnefningunni og hafði embætti þetta á
hendi í fjögur ár. Sagði hann því þá lausu og flutt-
ist alfarinn vestur á Kyrrahafsströnd. Var Ólafur
þá skipaður í hans stað, 23. júní 1914, fyrst vara-
konsúll, síðar konsúll. Eftir tíu ára þjónustu sagði
hann embættinu af sér, er gerst hafði all-snúninga-
samt yfir ófriðarárin miklu, á meðan að allskonar
hömlur voru lagðar á allar samgöngur og ferðalög.
Var þá mikið verk lagt undir skrifstofuna, er vai
engu launað, en sem ólafur leysti jafnan vel og ræki-
lega af hendi. í viðurkenningarskyni var hann
sæmdur riddarakrossi Dannébrogsorðunnar, 3. okt.
1924, um leið og uppsögn hans var tekin til greina.
Ólafur kvæntist 8. október 1888. Er kona hans
.lakobína Guðrún Jakobsdóttir frá Rauf á Tjörnesi,
Oddssonar. Fluttist hún ári á undan foreldrum sín-
um vestur um haf 1883, en þau árið 1884. Námu þau
land norðan við Gimli í Nýja íslandi og bjuggu
þar til dauðadags. Átta börn eignuðust þau ólaf-
ur og Jakobína Guðrún, en mistu þrjú, fimm
eru á lífi: Geir og ólafur Sigtryggur, báðir ókvæntir,
er nú hafa tekið við prentsmiðju og bókaútgáfu
föður síns; Karolína, gift Ragnari Swanson, búa þau
í bænum St. Boniface; Jakobína, gift Jóni Davíðssyni
í Winnipeg og Ragnheiður er til heimilis er hjá móð-
ur sinni og vinnur á verzlunarskrifstofu.