Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 102
102 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
því bræðrabörn. Árni faðir Guðrúnar bjó á Syðra-
Holti í Svarfaðardal, var hreppstjóri lengi og sæmd-
ur merki dannebrogsmanna. Kona hans var Sigur-
björg Þórðardóttir bónda á Kjarna í Eyjafirði Páls-
sonar. Kona Þórðar á Kjarna hét Björg Halldórs-
dóttir prófasts í N.-Þingeyjarsýslu, og systir Bjarn-
ar prófasts í Garði, langafa Þórhallar biskups í
Reykjavík. Þórður og Björg á Kjarna áttu fjóra
syni og níu dætur, og er afar fjölmennur ættbáikur
frá þeim kominn. Tómas og Guðrún bjuggu á ýms-
um stöðum á íslandi en síðast að Þúfnavöllum í
Hörgárdal í Eyjafjarðarsýslu.
Árið 1888 fluttu þau vestur um haf ásamt börn-
um sínum, að undanskyldum Árna, elsta syni þeirra
er kom til Ameríku árið áður. Fyrsta veturinn
dvöldu þau hjá Þórdísi systur Guðrúnar, konu
Þorláks Björnssonar frá Fornhaga í Eyjafirði, er þá
bjuggu nálægt Mountain, N. D. Vorið eftir fluttu
þau á land er Tómas hafði keypt þrjár mílur suður
af Garðar og bjuggu þar í átta ár. Var landið lítt
nothæft til akuryrkju, svo Tómas seldi það; og
bygði sér hús í námunda við Garðar-þorpið, og dvaldi
þar í tvö ár, unz hann seldi það og tók ofangreint
land með heimilisrétti og flutti hingað sumarið 1899.
Og bjuggu þau hjón þar í 7 ár. Árið 1904 keypti
Tómas annað land í félagi við Árna, son sinn, (S.V.
14S. 23, 1—6). Var það heyskaparland á þeim tíma,
og unnu þeir það í félagi.
Tómas og Guðrún voru merkishjón; tóku góðan
þátt í félagslífi bygðarinnar og bjuggu hér rausnar
búi, og var jafnan gestkvæmt þar enda ekkert sparað
við gesti, hvort þeir voru ríkir eða fátækir. Þau
voru bæði greind, sem þau áttu kyn til, og skemtileg
og greinagóð í viðræðu og því alt annað en fráhrind-
andi í viðmóti. Þau hjón eignuðust 13 börn, af þeim
komust til fullorðins ára aðeins 8: 1. Árni (fyrnefnd-
ur, og verður getið nánar) ; 2. Katrín, gift Gamalíei
Þorleifssyni bónda í grend við Garðar, N. D., dáin