Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 88
88
óLiAFUR S. THORGEIRSSON:
Eiríks þessa var Magnús ólafsson á Skriðu, faðir
Stefáns í Litla Sandfelli, er Sandfellsætt er komin frá.
Ein dóttir Stefáns Magnússonar í Litla-Sandfelli var
Ragnhildur, móðir séra Bjarna, föður séra Jóns
Árni Signrðsson Kristjana Stefánsdóttir
Bjarnasonar í Winnipeg. Systir Stefáns í Litla-
Sandfelli var Bóthildur Magnúsdóttir, móðir Einars
í Götu, föður Þórunnar, móður Páls skálds á Hall-
freðarstöðum, ólafssonar.
Föðurmóðir Árna Sigurðssonar og kona Eiríks á
Skjöldólfsstöðum var Rannveig Árnadóttir, bónda í
Kelduskógum, Jónssonar prests á Hálsi í Hamars-
firði, Gissurarsonar. Móðir Árna í Kelduskógum og
fyrri kona séra. Jóns á Hálsi var Þóra Sveinsdóttir
bónda á Svínafelli, Jónssonar. Kona Sveins á Svína-
felli var Vilborg Árnadóttir hreppstjóra á Eyjólfs-
stöðum á Völlum, Pálssonar Skriðuklausturs um-
boðsmanns, Björnssonar sýslumanns á Bustarfelli í
Vopnafirði, Gunnarssonar. Má rekja þá ætt í
beinan karllegg til Þorgeirs Ljósvetningagoða og lög-
sögumanns, Þorkelssonar.
Móðir Árna Sigurðssonar og kona Sigurðar
Eiríkssonar í Fagradal var Elízabet (f. 11. ág. 1802,