Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 126
126 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
9. Ingibjörg' Guðmundsson, að Monutain, N. D. Fædd að
Bálkastöðum í Miðfirði 18. mai 1841. Ógift. Kom að
heiman 1888.
9. Sæmundur Ágúst Sæmundsson, á sjúkrahúsi í Grafton,
N. D. Fæddur í Winnipeg 4. febr. 1900. Foreldrar: Sæ-
mundur Sæmundsson og kona hans Fjóla, að Svold, N.D.
10. Sigríður Leifur, að heimili sinu Mountain, N. D. Fædd á
Dvergasteini í Árness. 3. júní 1857; ekkja Isleifs Vern-
harðssonar (Leifs).
18. Hafsteinn Sigurður Johnson, að heimili sínu í Limerick,
Sask. Fæddur við Mountain, N. D., 23. febr. 1883. For-
eldrar: Sigurður Jónsson frá Torfafelli í Eyjafjarðars.
og Sigríður eldri Brynjólfsd. frá Skeggjast. í Húnaþingi,
20. Elías Stefánsson frá Hensel, N. D., dó á hermannaspítal-
anum í Minneapoiis, Minn.
23. Ólöf Illugadóttir Anderson. Fædd að Hóli á Langanesi
1854.
28. Ólöf Guðmundsdóttir, kona Jóhannesar prentara Vig-
fússonar. Fædd 1. nóv. 1847. Foreldrar: Guðmundur
Vigfússon og Málfríður Jónsdóttir. Kom að heiman 1893.
DESEMBER 1937
1. Guðjón Hanson Hjaltalín, í St. Paul spítalanum í Van-
couver. Fæddur á Jörva í Kolbeinsstaðahr. 19. febr. 1870.
4. Helga Halldóra Sveinsson í Víðisbygð. Foreldrar: í>or-
leifur Sveinsson og kona hans Guðrún Eggertsdóttir;
ættuð úr Húnavatnssýslu.
11. Jón Janusson, i Foam Lake, Sask. Hann var sonur séra
Janusar Jónssonar í Holti í Önundarfirði. Hann mun
hafa verið hálf-áttræður að aldri.
Leiðrétting við “Mannalát”
Sigurður Thórarinsson var fæddur 5. des. 1852 ekki 5. des.
1859 eins og stendur í Almanakinu fyrir 1937.