Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 61
ALMANAK 1938
61
IV. þáttur — Elm Point og Steep Rock
Fyrir austan Manitobavatn gagnvart Bluff eru
nokkur lönd vel byggileg fyrir griparækt. Þar hafa
nokkrir landar tekið sér bólfestu. Fyrstur þeirra var:
Jón Stefánsson frá Gimli. Hann má kallast höf-
undur þessa landnáms, þótt ekki tæki hann þar land
sjálfur. Jón mun hafa verið með fyrstu landnemun
á Gimli, og mun hans getið í landnámsþætti Gimli-
búa. Annars er Jón víða kunnur, af ritum sínum ot:
Ijóðmælum. Þegar börn Jóns voru þroskuð, þá s
hann litla framtíðarvon fyrir þau á Gimli, því þar
voru þá öll lönd upptekin í nágrenninu, og ekki álit-
legt með atvinnu í bænum. Tókst hann því ferð á
hendur, norður með Manitoba-vatni til að hyggja að
landkostum, þar sem landrými væri nóg fyrir sonu
hans alla. Valdi hann sér lönd á tanga þeim er Elm
Point kallast, því þar var landrými nóg, og engin
bygð nærri. Flutti hann þangað með börn sín öll
sumarið 1912. Tveir af sonum hans tóku þá þegar
lönd á Section 29. og 30. T. 26, R. 9 W. Síðan hafa
þeir bræður keypt mörg lönd á þessu svæði, og eru
þar allir búsettir. Börn Jóns eru þessi: Pálmi Stefán,
Jón Alex, Stefán, Anna Valgerður, gift enskum
manni; Elín Þórunn Jónína, gift Friðþjófi Snædal,
kaupmanni á Steep Rock; Valdína Sigrún, gift Geira
Oddssyni frá Lundar. — Pálmi er giftur Kristínu
Halldórsdóttur landnámsmanns frá Gimli. Jón Alex
og Stefán eiga konur af enskum ættum. Allir eru
þeir bræður mannvænlegir menn, hafa góð gripabú
og stunda fiskiveiðar á vetrum.
Þórólfur Vigfússon er fæddur á Kolfreyj ustað í
Suður-Múlasýslu 18. marz 1858. Faðir hans var
Vigfús Eiríksson, Guðmundssonar frá Bessastaða-
gerði, (sem kallaður var “Sögu-Guðmundur”). Móð-
ir Þórólfs var Valgerður Þórólfsdóttir Jónssonar, er
lengi bjó í Árnagerði í Fáskrúðsfirði; en kona Þórólfs
eldra var Þórunn Richardsdóttir Longs hins enska,