Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Síða 61

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Síða 61
ALMANAK 1938 61 IV. þáttur — Elm Point og Steep Rock Fyrir austan Manitobavatn gagnvart Bluff eru nokkur lönd vel byggileg fyrir griparækt. Þar hafa nokkrir landar tekið sér bólfestu. Fyrstur þeirra var: Jón Stefánsson frá Gimli. Hann má kallast höf- undur þessa landnáms, þótt ekki tæki hann þar land sjálfur. Jón mun hafa verið með fyrstu landnemun á Gimli, og mun hans getið í landnámsþætti Gimli- búa. Annars er Jón víða kunnur, af ritum sínum ot: Ijóðmælum. Þegar börn Jóns voru þroskuð, þá s hann litla framtíðarvon fyrir þau á Gimli, því þar voru þá öll lönd upptekin í nágrenninu, og ekki álit- legt með atvinnu í bænum. Tókst hann því ferð á hendur, norður með Manitoba-vatni til að hyggja að landkostum, þar sem landrými væri nóg fyrir sonu hans alla. Valdi hann sér lönd á tanga þeim er Elm Point kallast, því þar var landrými nóg, og engin bygð nærri. Flutti hann þangað með börn sín öll sumarið 1912. Tveir af sonum hans tóku þá þegar lönd á Section 29. og 30. T. 26, R. 9 W. Síðan hafa þeir bræður keypt mörg lönd á þessu svæði, og eru þar allir búsettir. Börn Jóns eru þessi: Pálmi Stefán, Jón Alex, Stefán, Anna Valgerður, gift enskum manni; Elín Þórunn Jónína, gift Friðþjófi Snædal, kaupmanni á Steep Rock; Valdína Sigrún, gift Geira Oddssyni frá Lundar. — Pálmi er giftur Kristínu Halldórsdóttur landnámsmanns frá Gimli. Jón Alex og Stefán eiga konur af enskum ættum. Allir eru þeir bræður mannvænlegir menn, hafa góð gripabú og stunda fiskiveiðar á vetrum. Þórólfur Vigfússon er fæddur á Kolfreyj ustað í Suður-Múlasýslu 18. marz 1858. Faðir hans var Vigfús Eiríksson, Guðmundssonar frá Bessastaða- gerði, (sem kallaður var “Sögu-Guðmundur”). Móð- ir Þórólfs var Valgerður Þórólfsdóttir Jónssonar, er lengi bjó í Árnagerði í Fáskrúðsfirði; en kona Þórólfs eldra var Þórunn Richardsdóttir Longs hins enska,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.