Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 47
ALMANAK 1938
47
réðist hann sem umferðasali og sérfræðingur “ex-
pert”, hjá voldugu þreskivélafélagi, og ferðaðist víða
um landið í þjónustu þess, hafði hann lagt sérstaka
stund á gufuvélafræði “steam engineering”, lærði og
gekk undir próf í vélfræði hjá “International Corres-
pondence School” í Scranton, Penn., með bréfa sam-
bandi. Var hann talinn færasti maður í sinni fræði-
grein. Árið 1907 setti hann á stofn járnvöruverzlun
í Glenboro í félagi með Jóhannesi S. Frederickson frá
Húsavík í Þingeyjarsýslu og ráku með kappi svo
árum skifti, en seldi Jóhannesi loks sinn hlut, en
hefir eingöngu á síðari árum verið umboðsmaður fyr-
ir Ford bifreiða félagið, og olíufélag. Hefir einnig
starfrækt bifreiða aðgerðarstöð (Garage and Service
Station) í félagi með Páli bróðir sínum, og er félags-
nafnið Anderson Bros. Hafa þeir umfangsmikið
starf, og njóta trausts almennings.
Snæbjörn er kvæntur Kristínu Jakobsdóttur
Helgasonar og konu hans Kristjönu Kristjánsdóttur.
er hún fædd á Hallgrímsstöðum í Fnjóskadal, 1. apríl
1883, kom vestur með foreldrum sínum 1884, og ólst
upp í Argyle-bygðinni. Hún er merk kona og mann-
kostum búin, hefir kveðið að henni í félagsstarfsemi,
leggur gott til allra mála sem verðskulda það. For-
seti kvenfélagsins í Glenborq var hún svo árum
skifti, og leysti hún skyldustörf sín af hendi með trú-
mensku og dugnaði. Hún er trúhneigð kona, og
hafa þau hjón verið stólpar safnaðar og kirkjumála.
Börn þeirra eru: Kristjana Vigdís og Friðrik,
efnileg og vel gefin, bæði ógift heima í föðurgarði.
Páll A. Anderson. Fæddur á Sigurðarstöðum í
Bárðardal 1881, sonur Andrésar Andréssonar og Vig-
dísar Friðriksdóttur, sem hér er getið að framan.
Páll flutti vestur með foreldrum sínum 1887, settist
að í Argyle-bygð og ólst þar upp. En í Glenboro
hefir hann nú verið hart nær fjórðung aldar. Hefir
hann verið í félagi með bróðir sínum Snæbirni, haft