Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 72
72 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Vilhelm Axel Kernested er fæddur við Narrows
1891. Faðir hans var Páll Kernested bóndi við Nar-
rows, og er hans áður getið í þáttum þessum. Vil-
helm ólst upp hjá föður sínum til fullorðinsára og
nam land í nágrenni við hann á N.E. 6—24—9. Ann-
að land keypti hann á 31—24—9. Þessi lönd á hann
enn, en hefir leigt þau til afnota. Hann hefir nú
um allmörg ár unnið að búðarstörfum hjá Þorkeli
Klemens. Vilhelm er kvæntur norskri konu sem
heitir Helma. Þau eiga eina dóttur sem heitir Arle
Palla.
Hermann Helgason er fæddur 12. jan. 1892 á
Litlalandi í Ölfusi. Faðir hans var Helgi Þórðarson,
en móðir hans var Herdís Magnúsdóttir bónda á
Litlalandi og hjá honum ólst Hermann upp, þar til
hann var 11 ára. Þá fór hann til Reykjavíkur til
foreldra sinna. Þegar hann var 17 ára, fór hann
að læra trésmíði og stundaði það á ýmsum stöðum,
þar til hann fluttist vestur um haf 1914. Vann hann
fyrst að smíðum í Winnipeg, en fluttist síðan norðuv
í Siglunesbygð og hefir oftast unnið að smíðum síð-
an. Hann er kvæntur Hólmfríði Sigurgeirsdóttur,
Péturssonar frá Reykjahlíð og er sú ætt alkunn.
Börn þeirra eru: Hafsteinn Elmo, Albert Marvin og
Alvin Sigurgeir. Hermann er smiður góður og
mesti dugnaðarmaður.
Eiríkur G. Johnson er fæddur 8. marz 1900 í
Húsey í Norður-Múlasýslu. Foreldrar hans voru
Guðmundur Jónsson og Jónína Björnsdóttir er þá
bjuggu í Húsey. Þau fluttust vestur um haf 1903
með börn sín, og námu land í Vogar-pósthéraði. —
Eiríkur ólst upp hjá foreldrum sínum, þar til hann
var 18 ára, þá fór hann til Ashern og vann þar nokkur
sumur við aðgerðir á bílum og ýmsum vélum og afl-
aði sér nokkurar þekkingar í þá átt. 1926 keypti
hann þar smiðju og áhöld til aðgerðar á vélum, og
hefir stundað þá vinnu síðan á sumrum; en á vetrum
hefir hann oftast stundað fiskiveiðar með bræðrum