Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Side 33

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Side 33
ALMANAK 1938 33 fara með almenn mál að ekki væri hann tilnefndur. Þannig átti hann sæti af og til í íslendingadagsnefnd fram til síðari ára, og í stjórnarnefnd Þjóðræknisfé- lagsins eftir að það komst á legg. í söfnunarnefnd til Jóns Sigurðssonar minnisvarðans var hann kos- inn (1910—21) og í hlutasölunefnd Eimskipafélags- ins (1913—14). En áður en skilið er við að segja frá félagsstarfsemi hans, skal tilfærður hér kafli úr ræðu er hann flutti á 25 ára afmæli Klúbbsins “Helga Magra”, og hvergi hefir áður verið birtur, er lýsir hugarfari hans gagnvart þjóðlegum minningum og íslenzku félagslífi, sýnir líka listhneigð hans og hug- sæi: “Vestur um haf höfðu margir Eyfirðingar fluzt frá því fyrsta; þar á meðal nokkrir af Akureyri kringum 1890 og staðnæmdust hér í Winnipeg. Voru það handverksmenn eins og gerist svona upp og ofan. Við vorum níu Eyfirðingarnir sem mynduð- um Helga Magra Klúbbinn. Var sú tala auðvitað til- viljun ein; en það voru líka níu menn hjá Jónasi, sem nóttina áttu að stytta. Sumarið 1901 bættist í hóp okkar gamall stallbróðir frá Akureyri, Páll Magnús- son að nafni, söngmaður með afbrigðum og æfinlega reiðubúinn til að syngja, og lét okkur aldrei í friði. Ef hann hitti einhversstaðar tvo eða þrjá, þá hætti hann ekki fyr en hann hafði fengið okkur til að taka saman lag með sér. Þetta leiddi til þess að hugir okk- ar drógust saman á ný, og við komum hvor til annars í frístundunum og sungum alt sem kunnum. Höfð- um við löngum sungið saman í æsku undir forustu heilla karlsins okkar, Magnúsar Einarssonar, organ- ista sem síðari hlut 19. aldar vann manna mest að því að útbreiða sönglistina á Norðurlandi. Var hann óþreytandi í því að smala saman ungmennum og koma þeim til að syngja, vetur, sumar, vor og haust. Er þessa hér minst vegna þess, að eg veit, að innan veggja hér eru margir lærisveinar Magnúsar Einars- sonar, sem bera í brjósti hlýhug og virðingu til öld- ungsins sem enn er á lífi. Eins og geta má nærri,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.