Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 97
ALMANAK 1938
97
Gunnlaugur Árnason,
bróðir Sveins Árnasonar,
hér næst á undan, er
fæddur á Eyvindarstöð-
um í Vopnafirði 21. maí
1876. Ólst hann upp hjá
foreldrum sínum og flutt-
ist með þeim frá íslandi
til Norður Dakota 1892.
Nam 160 ekrur með
heimilisrétti (norðvestur
fjórðung úr Section 21,
T. 1, R. 6, west) í Brown-
bygðinni, um sama leyti
og Árni Sigurðsson, fað-
ir hans, festi sér land Gunniaugur Arnason
þar; liggja lönd þeirra
feðga saman. Vann svo Gunnlaugur að allri búsýslu
á báðum löndum þeirra feðganna en hafði heimili hjá
foreldrum sínum, unz þau brugðu búi og fluttu al-
farin norðvestur til Þórðar sonar síns, að Mozart,
Saskatchewan. Bjó Gunnlaugur svo nokkur ár að
Brown, eftir það, en mun ekki hafa fest yndi þar í
bygð, þegar er foreldrar hans og systkini öll höfðu
flutt burtu. Árið 1910 losaði Gunnlaugur sig við
alla eign sína að Brown og flutti til Vatnabygðanna
í Saskatchewan. Bjó hann þar á leigujörðum
allmörg ár, en keypti svo land í grend við
borpið Clair, norðanvert við Vatnabygðirnar, og
hefir búið þar síðan. Gunnlaugur kvæntist í fyrra
sinn, að Baldur í Manitoba 12. maí 1906 Jóhönm'
Sigríði (f. 8. júní 1886) Þórðardóttur, bónda í Ar-
byle-bygð, Þorsteinssonar. Hún dó 7. apríl 1918.
Börn þeirra á lífi eru:
1. Sigrún Elízabet, f. 28. júlí að Brown, Man., gift
að Gull Lake, Sask., 18. apr. 1927, manni af
þýzkum ættum, Otto Wolf að nafni.
2. Steinþór Árni, f. 22. marz 1911 að Elfros, Sask.