Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1938, Blaðsíða 39
ALMANAK 1938
39
Hauksbók, safn alþýðlegra fræða. 1905.
Vafurlogar: Sjö fyrirlestrar eftir séra Friðrik J.
Bergmann. 1906.
Smælingjar: Fimm sögur eftir Einar Hjörleifsson
(Kvaran). 1908.
Söngvar Bandalaganna og sunnudagsskólanna.
Blómsturkarfan: 2. útg. þýdd af frú Sigr. Magnús-
son. 1912.
Nokkur Ijóðmæli: eftir Sigurð J. Jóhannesson. 1915.
Hagalagðar: Ljóðmæli eftir Júlíönu Jónsdóttur. 1916.
Hvert stefnir? Fyrirlestur eftir séra Friðrik J.
Bergmann. 1916.
Austur í Blámóðu fjalla: eftir Aðalstein Kristjáns-
son. 1917.
Sögur Breiðablika: Þýddar smásögur af séra Friðrik
J. Bergmann. 1919.
Stafrofskver: eftir séra Adam Þorgrímsson. 1920.
Bútar úr ættarsögu íslendinga: Sérprent, eftir Stein
Dofra. 1921.
Bréf frá Ingu, héðan og handan, I. Útgef. Soffanías
Thorkelsson. 1931.
Bréf frá Ingu og fleirum, handan, II. Útgef. Soffanías
Thorkelsson. 1932.
En höfuðrit prentsmiðjunnar eru þó tímaritin
tvö, mánaðarritið “Breiðablik” (1906—14) og árs-
fjórðungsritið “Syrpa” (1911—22). Fengu bæði
þessi rit allmikla útbreiðslu og koma þau við sögu
sinnar tíðar, einkum þó hið fyrnefnda, er var trú-
málarit og gefið út, með þeim tilgangi að kynna
mönnum rannsóknir og niðurstöður seinni tíma
biblíuskýrenda og fornfræðinga. Ritstjóri var séra
Friðrik J. Bergmann. Mun einkavinátta þeirra, hans
og ólafs og samvinna, hafa byrjað með útkomu
þessa rits. Áttu þeir mjög undir högg að sækja með
það, eins og verða vill um flest er til nýmæla horfir,
og almenningur hefir engan skilning á. En því nán-
ari varð viðkynningin sem þeir urðu til samans meira
á sig að leggja.
“Syrpa” var sniðin eftir vestrænum tímaritum
og innihaldið skáldsögur, kvæði, þjóð- og munnmæla