Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1910, Blaðsíða 14
2
OLAFUR s. thorgeirssön;
Á þessu ári teljast liöin vera r
frá Krists íæðing’u .......... ...........1910 ár
írá sköpun veralda-r......-...............5877 ár
í'rá upphaíi Islandsbygðar.......... -. 1036 ár
tVá siðabót Lúters........................ 393 ár
Árið 1910 sunnudagsbókstafur B.
Gyllintal : 11.
Milli jóla t>g langaföstu eru 6 vikur og 1 dagur.
Myrkvar.
A árinu 1910 verða 4 myrkvar, 2 á sólu og 2 á tungli.
Tveir þeirra eru sýnilegir her: Sólm. 2. nóv., og tunglmyrkví
17. nóvember.
L3. des. um kl. 1 f. -m. hylur tunglið plánetuna Satúrnus.
Árstíöirnar.
I Vestur-Canada er talið að
Vorið byrji .................. 21. marz
Sumarið....................... 21. júní
Haustið....................... 23. september
Veturinn...................... 22. desember
Tunglið.
Fylgistjarna jarðarinnar er tunglið. Þvermál þess er 2,163
mílur og fjar|ægð þess frá jöið vorri 288,000 enskar mílur. Braut
sína umhverfis jörðina gengur það á því tímabili, sem almenter kall-
að tunglmánuður ; er það tímabil alment talið 28 dagar, en er raun
rettri 27 dagar og 8 klukkustundir, eða rétt um það bil.
Um tímatalið.
Forn-Egyptar skiftu degi og nóttu í 12 kl.-stundir hvoru, — og
hafa Gyðingar og Grikkir ef vill lært þá venju af Babýlóníu-mönn-
\im. Það er sagt, að deginum hafi fyrst verið skift í klukkustundir
árið 293 f. Kr., þegar sólskífa fyrst var smíðuð og sett upp í Quirin-
us-musterinu í Róm. Þangað til vatnsklukkurnar voru uppfundnar
(árið 158 f. Kr.), voru kallarar (eða vaktarar) viðhafðir í Róm til að
segja borgarbúum, hvað tímanum liði. Á Englandi voru vaxkerta.
ljós höfð fyrst frameftir, til að segja mönnum, hvað tímanum liði-
Var áætlað, að á hverri klukkustund eyddust 3 þumlungar af kert-
Ínu. Hin fyrsta stundaklukka (tímamælir —sigurverk) í líkingu við
þær, sem nú tíðkast, var ekki fundin upp fyr en árið 1250. Forn-
menn á Norðurlöndum töldu flestir, að dagur byrjaði með upprás
sólar. Aþenumenn og Gyðingar töldu hann byrja á sólsetri, og
Rómverjar, eins og vér, á miðnætti.