Afturelding - 01.03.1968, Side 9
£. W. LAWRENCE :
Hvernig Chiang Kai Shek varð kristinn
Frásögnin um það, hvernig æðsti hershöfðingi
Kínverja. Chiang Kai Shek, kom til trúar á Krist,
er undursamleg sönnun um náð Guðs. Hann var
fæddur í kínversku smáþorpi, þar sem allir for-
feður hans höfðu verið bændur. Faðir hans dó,
er hann var 9 ára gamall, og var hann þess vegna
alinn upp af móður sinni.
Á þeim tíma sem „Manchu-fyrirkomulagið“
ríkti, var ömurlegt ástand í landinu. Mútur, lög-
leysi og ranglæti í allri þjónustu, var á vörum
allra manna. í þessu umhverfi óx hinn ungi Chiang
upp og lifði bernskuár sín.
Á tíma byltingarinnar 1911, var hann 25 ára
gamall og tók á móti kenningum flokksins og
gekk í lið með þeim. Nokkrum árum seinna stjórn-
aði Chiang Kai Shek sinni eigin hirðingjasveit. í
þessari hersveit voru mjög samvizkulausir og óupp-
dregnir fylgjendur hans. Svo mannmargir voru
þeir, að þeir gátu gert álilaup á kínverska borg, og
þvingað hina óttaslegnu íbúa borgarinnar að hlýða
sér tafarlaust. Hús voru rænd, lögð í rústir og
menn deyddir. Ekki einu sinni kristniboðstöðinni
var hlíft af þessum árásarmönnum. Eftir 24 klukku-
stundir var allt lagt í rústir og kristniboðinn varð
að horfa á, hvernig 30 ára samvizkusamt starf
hans var brotið niður. Chiang Kai Shek lét sér
þetta allt vel líka. Afstaða hans til kristinna
manna var hin sama og Sáls frá Tarsus. En eins
og Sál, átti hann eftir að breytast í auðmjúkan
við veltum hlutunum fyrir okkur, verðum við að
viðurkenna þann mikla ríkdóm og hamingju, sem
kristið heimili er. Mættum við gera það að bæna-
efni okkar, að við öðluðumst sömu fjölskylduvakn-
ingu, sem Nói fékk að reyna, þar sem faðir, móðir
og öll börnin völdu þann lífsveg, að ganga inn í
frelsisörk Guðs.
lærisvein Jesú Krists. Eftir að búið var að brenna
heimili kristniboðans og sjúkrahús lians, sagði
krismiboðinn, sem einnig var læknir, við Chiang
Kai Shek:
„Herra, herforingi, mig langar til að biðja yður
bónar.“
„Þú hefur ekki leyfi til þess,“ svaraði hershöfð-
inginn, þurrlega. „En hvað er það, eiginlega sem
þú vilt biðja um?“
„Kristniboðinn, sem var fylltur af kærleika
Krists mælti:
„Herra, þér liafið eyðilagt starf mitt, og brennt
sjúkrahúsið lil kaldra kola. Nú hef ég ekkert hér
að gera lengur. En viljið þér gera mér þann
greiða að lofa mér að fylgja yður til þess að geta
hjúkrað særðum hermönnum yðar?“
Aldrei á ævi sinni hafði Chiang Kai Shek heyrt
slíka beiðni, og undir þvílíkum kringumstæðum.
Undrandi mjög gaf hershöfðinginn honum leyfið.
Þegar hershöfðinginn seinna meir, skýrði konu
sinni frá þessum atburði, fór hún að benda hon-
um á, að líklega hefði þessi kristniboði verið
að sýna í verkum reglur sinna trúarbragða.
„Ef svo er,“ svaraði hann, „að þetta séu reglur
trúarbragða þeirra sem þessir útlendingar prédika,
þá vil ég verða kristinn.“ Og liann varð það. Hann
bað til Guðs um náð og fyrirgefningu. Bænir hins
iðrandi herforingja komu fram fyrir hásæti Guðs
og voru heyrðar vegna fórnardauða Jesú Krists.
Árið 1936 var honum rænt og hann settur í
fangelsi, af einum fyrrverandi hershöfðingja hans.
Konan hans fylgdi honum að eigin ósk, og varð
með honum í fangelsinu. Á þeim tíma, sem þau
voru þar, fengu þau kraft og styrk við lestur Guðs
orðs. Og fyrir vitnisburð þeirra hjónanna, snérist
herforinginn, sem fangelsaði þau, til trúar á und-
ursamlegan hátt. Og þegar í stað fengu þau frelsi
sitt aftur.
9