Afturelding - 01.03.1968, Side 35
Þetta viljum við vita
SPÖRVINN OG SVALAN
Þau flugu saman og sungu
einn sólbjartan júní-dag.
Ég hlustaði hljóður á sönginn
og hreifst af þeim dillandi brag.
Og spörvinn við svöluna sagði,
hve sœtt er þitt unaðslag.
En hví eru mennirnir alltaf
svo áhyggjufullir hvern dag?
Það er af því, svaraði svalan,
mér sýnist þá vanta frið.
og eiga ekki á himni
neinn algóðan föður sem við.
Spuming:
Viljið þér vera svo góður að gefa mér öruggt
ráð til þess að ég geti fengið börnin mín til að
trúa á Guð og Biblíuna. S. A.
Svar:
Bezta ráðið er, að þér verið þeim sönn fyrirmynd
upp á líf kristinnar móður.
Kóbert Moffat vitnaði og sagði, að vegna sterkra
áhrifa frá sönnu trúarlífi móður sinnar, hafi hann
orðið kristniboði.
John Randolph sagði: „Ég held, að ég hefði orð-
ið guðleysingi, ef ég hefði ekki átt þær minningar
um trúarlíf móður minnar, sem ég á. Móðir mín
beygði kné sín við hlið mína og kenndi mér að
biðja. Ágústínus sagði: Ef ég er Guðs barn þá er
það því að þakka, hve guðelskandi og góða móður
ég átti.“
Bezta ráð til þess að kenna hörnum sínum að
þekkja Guð, er ekki að halda ræður yfir þeim,
ekki að prédika yfir þeim, heldur að lifa í Kristi
daglega fyrir augum þeirra.
Auðvitað er nauðsynlegt að lesa Bihlíuna með
börnunum. En það eitt fyrir sig kemur litlu til
vegar, ef þau sjá ekki birtu trúarinnar ljóma af
yðar eigin lífi. — Talið við börnin yðar um Krist,
en þau íhuga það með sjálfum sér livort þér hafið
Guðs Anda. Barn vill miklu lieldur sjá prédik-
unina en hlusta á liana. Og þegar það sér trúna hjá
móður sinni, eða vöntun trúar, mun það endur-
speglast í lífi barnsins.
35