Afturelding - 01.03.1968, Side 43
sem hægt var og þeim lánuð blöð og bækur o. fl.
í byrjun desember var fariS aS láta jólapakka um
borS í þau íslenzk skip sem vitaS var um aS ekki
yrSu í heimahöfn um jólin. Voru alls gefnir 190
pakkar til íslenzkra sjómanna, og 22 til erlendra,
en auk þess voru þeim gefin 160 Nýja testamenti í
staS jólapakka.
Um jólin voru haldnar 3 sjómanna-guSsþjón-
ustur í Salem. Sú fyrsta var auglýst á jóladags-
kvöld fyrir alla þá sjómenn sem hér voru í höfn,
en áttu ekki heimili hér. Voru þar samankomnir
íslenzkir og erlendir sjómenn. FariS var með Guðs
orð á íslenzku og ensku og jólasálmarnir sungnir
sameiginlega. Drottinn blessaði þetta dásamlega
og gaf sanna jólagleði. Þá var sezt að hátíðlegu
kaffiborði og þess notið sem þar var fram borið.
Síðan var tekið til við jólapakkana og dregið
um þá, að auki var svo dregið um stærsta pakk-
ann, en það var stór, innrömmuð Kristmynd. Hlaut
hana enskur sjómaður. AS kvöldi 2. jóladags og
laugardags 30. des. var svo aftur komið saman
með svipuðu sniði, en auk þess voru þá sýndar'
íslenzkar litskuggamyndir.
Allt fór þetta mjög vel fram, og var ávallt
endað með því að allir risu úr sætum og báðu
„Faðir vor“, hver á sínu máli. Á eftir skrifuðu
svo margir nýárskveSjur til ættingja og vina. Var
greitt fyrir miklu af pósti frá sjómönnum á árinu.
Fri kafliboði sjómanna & jóladag 1967.
Frá Gundu Liland
Eins og margir lesendur Aftureldingar vita,
hefur Gunda Liland, kristniboði í Swazi-
landi verið styrkt fjárhagslega frá Hvíta-
sunnumönnum á íslandi í mörg ár. Þeim
sem það hafa gert á einn eða annan hátt,
má segja það til mikillar gleði, að starf
hennar og þeirra hjóna, hefur borið ríkulega
ávexii, og því meiri sem árin hafa liðið.
Brýn þörf hefur verið á því, að byggja
biblíuskóia í Swazilandi fyrir innlenda unga
menn, sem vilja gefa sig út sem trúboðar.
Gunda Liiand hefur ferðazt um í Noregi til
þess að safna peningum fyrir þetta nauðsynja-
mál. Miðað við íslenzka peninga kostar það
kringum kr. 400,000. Hefur þegar verið
sent frá Islandi ca. 40.000 kr. til að efla
þennan sjóð, svo að framkvæmdir geti haf-
izt sem allra fyrst. Fíladelfíusöfnuðurinn í
Reykjavík mun halda áfram að taka á móti
gjöfum til kristniboðsstarfs Gundu Lilands
Má það gleðja alla, sem styrkt hafa þetta
starf frá upphafi, hve farsællega það hefur
gengið fram.
36 guðræknisstundir með sjómönnum voru haidn-
ar um borð í skipum. Við þökkum Guði fyrir þess-
ar samverustundir með sjómönnunum og erum
þess fullviss að þeir munu einnig eiga sérstakar
minningar héðan. Það mun því verða haldið áfram
á þessari braut í Drottins nafni. Vér væntum þess
að fleiri komi til móts við okkur, svo að hér geti
risið upp í náinni framtíð fullkomið sjómanna-
heimili.
Vér biðjum Guð að blessa sjómennina, og halda
vernd sinni yfir þjóðinni í heild til lands og sjávar.
„Dýrð ég flyt þér, Drottinn mildi. Dýrð fyrir
að þú heyrir bæn.“
F. h. Salem sjómannastarfsins.
Sigfús B. Valdimarsson.
43