Félagsrit - 01.01.1915, Qupperneq 52
skapnum, ög á því hlyti að grœðast siórfé árlegct
í framtíðinni fyrir landbúendur á félagssvæðinu.
Framleiðendur búfénaðar, búendur og búlausir! Ger-
ist allir sláturfélagsmenn og verið félagsskapnum trúir!
Þá líður ekki á löngu, að þér getið tekið alla verslun
ykkar í eigin hendur, einnig með aðrar söluvörur og
aðkeyptu vörurnar. Því öll samvinnufélagsverzlun er
sama lögmáli háð, og þroskun vinst með tíma og æfing.
Viðreisnarvon landbúnaðarins, viðhald sveita-
búskaparins, bygð landsins er að miklu leyti komið
undir því, að viðskiflasamvinnufélagsskapurinn verði al-
mennur og öflugur í landinu. Að styðja hann og etla
(og jafnframt bæta samgöngur á landi og sjó, til að
geta sem bezt notið hans), er landvarnarskylda vor
Islendinga, eini sýnilegi vegurinn til þess, að
þjóðin geti lifað.
Athugasemd.
Höfundur ritg. þessarar væntir þess, að góðir fé-
lagsmenn styggist eigi við, þótt hann láti þung orð falla
um fylgisleysi og ótrygð í félagsskapnum, og að þeir, sem
það kunna að finna í fari sínu, bæti ráð sitt; og fer þá
alt vel. — Þótt nokkuð hart sé að orði kveðið um kaup-
menskuna, er engum einstökum manni álasað, sem þá
atvinnu stundar á heiðarlegan hátt. Er eðlilegt, að ýms-
ir vilji nota sjer, meðan fólkið er svo grunnhyggið og
samtakalaust, og leyfir eða líður hverjum sem vill að
rýja sig og ílá, þó það liafi í hendi sjer ráðin við því
— samvinnufélagsskapinn —, ef það vill.