Félagsrit - 01.01.1915, Blaðsíða 75
75
framleiðendum milli Skeiðarársands og Snæfellsjökuls,
og byggja myndarlegt sameignarhús í Reykjavík til að
slátra í og útbúa vörurnar. Skrifuðu þá nefndarmenn
ýmsum mönnum i sýslunum á svæði þessu, og mæltust
til að kosnir yrðu fulltrúar fyrir sýslurnar, til að ráðg-
ast um og undirbúa stofnun slíks félags. Var þessu
vel tekið af flestum, og kosnir urðu fulltrúar. Vóru
þeir kvaddir til fundar i Rvik. 26. marz 1906. Þessir
sóttu fundinn:
1. Ágúst Helgason, bóndi, Birtingaholti, fyrir Ár-
nesssýslu,
2. Björn Bjarnarson, bóndi, Grafarholti, f. Kjósar-
sýslu,
3. Guðmundur Ólafsson, bóndi, Lundum, f. Mýra-
sýslu,
4. Jón Björnsson, Bæ, f. Borgarfjarðarsýslu,
5. Páll Ólafsson, bóndi, Heiði, f. Vestur-Skafta-
fellssýslu,
6. Sigurður Guðmundsson, bóndi, Helli, f. Rang-
árvalíasýslu,
7. Vigfús Guðmundsson, bóndi, Haga, f. Árness-
sýslu og
8. Þórður Guðmundsson, hóndi, Hala, f. Rangár-
vallasýslu.
Á þessum fundi var ákveðið fyrirkomulag félags-
skaparins, samið frumvarp til félagslaga, valinn staður
fyrir sláturhús í Rv. og lóðin föstnuð væntanlegu félagi.
Var unnið kappsamlega að öllum þessum undirbúningi
m. fl. í 5 daga og síðan gefinn út ritlingur með fundar-
gerðinni, frumvarpinu og aths. til skýringar. Á gerðum
þessa fundar var stofnun félagsins grundvölluð. En
fullnaðar-ákvörðun um að stofna félagið var tekin á