Félagsrit - 01.01.1915, Side 29
7. Félögin liér og skcrin.
A siðari árum hafa hér á landi verið mynduð all-
miirg verzlunarfélög, sum með samvinnufélagsskapar-
sniði að meira eða minna leyti; en flest hafa þau van-
þrifist, og er það ekki að undra. Þau hafa flest strand-
að á skerjum viðskifta-ódygðanna, sem lýst er hér að
framau, eða á spilling hugsunarháttarins, sem er eðli-
leg atleiðing af ástandinu eins og það hefur verið. Sum
þessi félög hafa verið svo óheppin, að gera að forstöðu-
mönnum sínum bragðarefi með kaupmennsku-ánda, sem
félagsmenn hafa ekki séð við, og því hafa getað flekað
félögin sér í hag. Þetta hefir svo hvekkjað félagsmenn,
aukið tortryggni þeirra og fælt þá frá félagsskapnum.
Mörg hafa strandað á ótrygð félagsmanna sjálfra. Þeir
Iiafa ekki kunnað að vera félagsmenn, ekki skilið til-
gang félagsskaparins, verið of rótgrónir í gamla viðskifta-
ódygða-hugsunarhættinum, og farið hinu sama fram við
félagið, sína eigin verzlun, eins og þeir vóru vanir að
fara fram við kaupmenn, ekki bætt vöruvöndunina og
ekki staðið i skilum. Þeir hafa skoðað félagið sem
kaupniann, er sjálfsagt væri að fleka svo sem þeir höfðu
vit á. Félögin hafa þvi ekki getað fengið betri kjör í
kaupum eða sölum en hjá kaupmönnum gerðist. Sum
hafa komist í skuldir vegna vanskila félagsmanna, og
oltið um koll, Altilt hefur ]»að verið, að félagsmenn
hafa selt hið skársta af vörum sinum kaupmönnum,
en fengið sinni eigin verzlun, félaginu, úrhrakið til með-
ferðar. Og svo kent stjórn félagsins um, hafi henni
ekki tekist af fá hærra verð fyrir þetta, en gerðist hjá
kaupmönnum. Oft hafa kraftmennirnir sneilt sig hjá
félagsskapnum, því þeir áttu von skárstu kjara hjá kaup-