Félagsrit - 01.01.1915, Blaðsíða 63
m
o. fl. endurbætur á lóðinni, eldvarnarskáp steinstevptatt,
til geymslu peninga, bóka og skjala, m. fl. umbótum,
sem nauðsyn var á, áhalda-aukning, umboðsmenskan
ytra, úttekt sláturhússins (eftir árs reynslu), niðurröðun
rekstra og ákvörðun verðlags (á hverju haustit. Fjár-
málin vóru þá erfið og tafsöm, eins og þessar funda-
gerðir sýna:
4. ágúst. ... „fann B. B. ráðherra að máli til að fá
vitneskju um hvort unt væri að viðlagasjóður Isl. gæti,
ef þörf krefði, hlaupið undir bagga með félaginu með
lán til reksturs í haust .... Ekkert ákveðið loforð
gefið“. — 26. okt. „Ný tilraun gerð til að fá reksturs-
peninga hjá bönkunum. er að lokum tókst á þann hátt
að Landsbankinn ábyrgist greiðslu fjársins til Isl. banka,
er lánar peningana. Ábyrgðir deildanna fær Landsbank-
inn að tryggingu, ásamt Jnöfnum frkvnefndarmanna.
Þannig fást 35,000 kr. til febr. loka“. — 14. desember.
„Eftir ósk forstjóra mætti B. B. í dag, útaf því, að 5000
kr. víxill féll til útborgunar, en óvíst um að greiddur
yrði; en úr því rættist, af því símskeyti i dag skýrði frá
innborgun Larsens í Landmandsbanken i Khöfn. Fékst
því seld ávísun á Larsen í ísl. banka (ekki í Landsb.!)
og var víxillinn þar með greiddur“. — Á síðasta fundi,
28. des., krafðist frkvn. auka-stjórnarfundar.
Árið 1909 eru 18 fundir bókaðir. Þar er þess
meðal annars getið, að 2. marz fengu þeir B. B. og
H. Th., upp á sin nöfn ein, 6000 kr. víxillán hjá Landsb.,
til að geta Iokið skuldinni hjá ísl. banka. Um vorið
varð enn að leita láns til að geta borgað eftirstöðvar
fjárverðs. Tókst það um stuttann tíma gegn ábyrgðum
og 2. veðrétti í eign félagsins. Slöfuðu þessir peninga-