Félagsrit - 01.01.1915, Side 55

Félagsrit - 01.01.1915, Side 55
55 sláturhúsið i Reykjavik forstjóra til aðstoðar um aðal- sláturtímann. — Tillaga um breyting á stjórnarfyrir- komulagi skyldi lögð fyrir deildarstjórafundi (fékk ekki meðhuld og hefur því ekki komið til framkvæmda —.) RáS- gert um hversu afla skyldi rekstursfjár handa félaginu (peninga til að útborga vörur, tunnur, salt, áhöld o. fl. og bvo fjárverðið, meðan verð fyrir seldar vörur ekki væri innkomið). Á. H. og Y. G. kosnir til aS gera tillögur um þetta. — SkrifuS bréf til sýslunefnda á félagssvæðinu um hlut- töku í ábyrgð, ef landsjóðslán fengist. (Undirtektir góðar hjá flestum, nema Skaftaf.j. — Forstjóra falið að útvega umboðsmann fyrir fél. í Englandi, ef til kæmi með út- flutning þangað. — Tillaga frá B. B. um að hvetja deildastjóra að sækja aðalfund að vori. — Akv. að fela manni í Bn. að hafa umsjón með húsinu þar, og leigja það milli sláturtíða. — Skrifað bréf til alþingis um kælirúm í millilandaskipum. — Umræður og ákvarð- anir út af lagabrotum. — Um laun fyrir forstöðuna í Bn. — Hert á umboðsmanni fél. í Danm. (A. C. L.) að borga sent kjöt. — B .B. falið að sækja til alþingis um 60,000 kr. lán handa félaginu. (Þrátt fyrir mótmæli, einkum frá þáverandi þingmönnum Rvikur, fékst lánsheimild, og árið eftir lán, upphafl. 45,000 kr., til 15 ára; afborgun er 3000 kr. á ári; var það góður styrkur, eins og þá var erfitt að eiga við þankana). 4. fundur, 24. júní 1909. Auk stjórnar,' fram- kvæmdanefndar og endurskoðara, sóttu 30 deildarstjór- ar fund þenna fyrsta daginn. Var þá: Eins og ætíð á aðalfundi, fyrst rætt um reikninga félagsins og ýmislegt í sambandi við þá. Ennfremur um sambandið milli sláturbúsanna í Rvík og Bn.; um útborgun fjárverðs og peningahorfur, ábyrgð deilda og margt fl. þar að lút-

x

Félagsrit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsrit
https://timarit.is/publication/418

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.