Félagsrit - 01.01.1915, Síða 62

Félagsrit - 01.01.1915, Síða 62
2. Úr gerffabók framkvæmtlanefndaí. Frkvn. byrjaði að halda bók yfir gerðir sínar 29. júní 1908. En starfsemi hennar byrjaði þegar eftir að hún var skipuð, 15. apríl 1907. Þá um vorið og sum- arið lentu störfin mest á einum nefndarmanna. H. Th. var ekki laus frá verzlunarstjórastörfum hjá Thom- sen fyr en í ágústlok, en P. St. var að flytja sig (að Elliðavatni) og koma sinu fyrir þar. Varð því að not- ast við B. B. einan til að annast alt, er að undirbún- ingi og framkvæmd sláturhússbyggingarinnar í Rvík laut, gera samninga við verktaka og alt þvílíkt. Við á- kvörðun um fyrirkomulag í húsunum, útvegun áhalda og þvíl., naut aðstoðar T. T. slátrara, eftir að hann kom frá Danmörku um sumarið. Hústeikninguna hafði Einar Erlendsson gert, og var hann eftirlitsmaður við bygginguna, sem tveir ungir byggingameistarar, Jens Eyjólfsson trésmiður og Kristinn Sigurðsson steinsmiður, höfðu tekið að sér. En margt var þá, sem til fram- kvæmdanefndarinnar kasta kom, og mun B. B. hafa orðið tafsamt við búskapinn það sumar. Um veturinn tókst hann á hendur, eftir samráði við formann og frkvn., fyrirlestraferðir um Borgarfj. og Mýrasýslu, til að hvetja bændur þar til hluttöku í félagsskapnum, og hafði það allgóðan árangur, einkum i Mýrasýslu. Árið 1908 hefur frkvn. átt með sér 15 fundi, sem bók- að er um. Eru nokkrir fyrstu fundirnir út af slátur- hússbyggingunni í Borgarnesi, er Jón Zoega trésmiður hafði tekið að sér að gera, gerðir samningar um hana með íl. er þar að laut, svo scm brunngerð þarogvains- leiðstu o. þvíl. Um vegargerð að húsinu í Rvík, stéttar

x

Félagsrit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsrit
https://timarit.is/publication/418

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.